Væntanleg breyting á ívilnun yfirvalda vegna tengitvinnbíla frá og með áramótum hefur verið í fréttum síðustu daga, og þá helst vegna þess að séu slíkir bílar til hjá umboðum, þá séu þeir annað hvort uppseldir eða fráteknir.
Bílar myndu hækka um allt að 960 þúsund
Hvor hluti ívilnunarinnar er 480 þúsund, og má því búast við að verð bílanna muni hækka töluvert á næstunni, nema að breyting verði á þessu við lokafrágang fjárlaganna á Alþingi.
Nóg til hjá Ísband
Í framhaldi af fréttum um að allir bílar bílaumboða séu fráteknir fram að áramótum, þá vill ISBAND, umboðsaðili Jeep á Íslandi, koma því á framfæri að til er gott úrval af Jeep Compass 4xe á lager hjá fyrirtækinu.
„Við fengum rétt fyrir jól góða sendingu af Jeep Compass Plug-In-Hybrid jeppum sem eru til afgreiðslu strax. Við eigum til gott úrval af bílum í Limited úrfærslum og einnig nokkra í Trailhawk og S útfærslum,” segir Sigurður Kr. Björnsson markaðsstjóri ÍSBAND.
„Jeep Compass er mjög vel útbúinn alvöru jeppi með alvöru fjórhjóladrifi. Hátt og lágt drif og hann er hlaðinn lúxus aukabúnaði. Compass er með einstakt fjórhjóldrif og eini jeppinn í sínum stærðarflokki sem er með lágu drifi,” bætir Sigurður ennfremur við. Jeep Compass Limited er nú á mjög góðu verði eða frá 6.999.000 kr. „Við hverjum fólk til að koma, skoða og reynsluaka þessum frábæra jeppa”, segir Sigurður að lokum.
Sigurður Kr. markaðsstjóri ÍSBAND við Jeep Compass í sýningarsal fyrirtækisins.
Aðrar umfjallanir
En það sleppur ef þú ýtir 256 sinnum í röð á takkann á fjarstýringu bílsins. Annars fer allt í vitleysu! Sturlaðar staðreyndir á borð við þessa eru innihaldsefni þessarar greinar.
Þarna er hann! Litli hlunkurinn í öllu sínu veldi – sem hefur látið bíða svona óskaplega lengi eftir sér (og mun láta bíða enn lengur eftir sér). Jú, ég á við Tesla Cybertruck! Hann var í prófunum á Tesla-brautinni í Fremont í fyrradag.
Rallökumaðurinn Gunnar Karl Jóhannesson er sjaldnast kyrr lengi. Enda væri ómögulegt að ná árangri í ralli með mikilli kyrrstöðu! Gunnar Karl er nú í Wales þar sem hann keppir á morgun í Rallynuts rallinu.
Enginn annar en Laddi var í hlutverki Dr. Bjarna Fel í auglýsingu fyrir torfærukeppnina á Hellu árið 1990. Óheyrilega fyndið og vekur upp ýmsar minningar. T.d. minningu um ægilegan misskilning.