Það er nú það. Í það minnsta getur það lengst. PT Cruiser hefur af mörgum verið talinn með óheppilegri bílum hvað hönnun og hinn sýnilega hluta bílsins snertir. „Ljótur“ er það orð sem oft hefur heyrst í sömu andrá og PT Cruiser hefur verið nefndur.
Í gær deildi einhver þessari mynd á Reddit:
Kom mér nokkuð á óvart að í umræðuþræði undir myndinni voru nokkrir á því að í fyrsta skipti þætti þeim PT Cruiser ekki ljótur. Þegar hann var orðinn lengri.
Spes!
Örþrifaráð eða eitthvað enn verra?
Þetta fékk mig til að hugsa um nokkuð sem er voðalega ljótt. Hvað þá?
Jú, fleiri PT Cruiser-a.
Dæmið hér að ofan er eitt af mörgum um til hvaða örþrifaráða mannfólkið hefur gripið í þeirri áhugaverðu viðleitni að reyna að fegra PT Cruiser. Það er sérstakt hve mörg dæmi eru um slíkt.
Hann hefur ekki komist ofan í...
Áður en lengra er haldið er rétt að geta þess að sú er þetta skrifar hefur eitt sinn ekið PT Cruiser. Það var þegar bíllinn var tiltölulega nýkominn á markað í Ameríku og þar var ég einmitt stödd. Fólk hafði sennilega ekki myndað sér skoðun á bílnum og var mikið glápt. Á bílinn, ekki mig.
Þetta kom nú eingöngu til af því að þessi tiltekni bíll var sá eini sem eftir var á bílaleigunni þann daginn og því ekki um neitt að velja.
Og að lokum ...
Myndirnar eru flestar fengnar gegnum Pinetrest og því erfitt að geta ljósmyndara. Enn erfiðara er að geta eigenda bílanna, enda fara þeir sennilega flestir huldu höfði. Eðli máls samkvæmt.
Aðrar umfjallanir
Jú, það er rétt. Þetta er hann. Smart #1 meira að segja. Það er nafnið á nýjum rafjeppa Smart sem ætlað er að koma fyrirtækinu aftur á kortið.
Tesla kynnti nýverið breytingar á S-gerðinni, sem eru þær róttækustu síðan hún kom fyrst út árið 2012. Áætlað er að hún komi á markað í Bandaríkjunum...
Um páskana birtum við grein með myndum sem Hafliði Birgir Ísólfsson sendi okkur.
Meira en 400.000 ökutæki sem verða fyrir áhrifum eru í Svíþjóð, meira en 300.000 eru í Bandaríkjunum og 178.000 eru í Þýskalandi...