Hafið þið heyrt um gaur í Vesturheimi sem fjárfesti í æðisgengnum sportbíl frá Kína? Bíllinn er geggjaður og heitir Qiantu K50. Þetta er rafbíll, 375 hestöfl og er 4,2 sekúndur frá 0-100 km/klst. Svakalega flottur bíll. En svo opnaði kaupandinn kassann þegar bíllinn kom, 8 mánuðum síðar.
Qiantu K50 er voðalega flottur að sjá og eflaust skemmtilegur líka. Mynd/Wikipedia
Það getur vel verið að lesendur kannist við þetta mál því það er rúmlega ársgamalt. Áhugavert er það með eindæmum og grátbroslegt í senn.
Þannig var að maðurinn, sem kallar sig The Inja, sá svakalega fínan bíl á veraldarvefnum og langaði að eignast einmitt þannig bíl. Eftir að hafa sannfært eiginkonuna um ágæti þessa bíls, féllst hún á að það væri réttlætanlegt að verja rúmum fjórum milljónum króna (31.000 dollurum) í slíkan glæsigrip og Inja pantaði bílinn.
Þetta var rétt áður en vágestur að nafni Covid-19 bankaði uppá með hrjúfum hrömmum sínum. Þ.e. sem bíllinn var pantaður. Bíllinn kom með skipi 8 mánuðum seinna, alla leiðina frá Kína.
Heldur virtist hann lítill, kassinn með sportbílnum. Skjáskot/YouTube
Æjææjæjæj….
Inja er mikill „ÞúVarpari“ þ.e. manneskja sem er með rás á YouTube og varpar efni sínu þaðan. Hér er hlekkur á rásina.
„Bölvað bras,“ myndi einhver jafnvel kalla það.
Ekki veit ég hvort lesendur hafi áhuga á að reyna að setja sig í spor manns sem greiðir feita upphæð fyrir ökutæki sem hann hefur ekki séð. Ökutæki sem kemur eins og hver annar pakki með „póstinum“ nema bara eftir dúk og disk.
Hvort sem lesendur spiluðu myndbandið eður ei, er skemmst frá því að segja að Inja hafði í raun og veru greitt rúmar fjórar milljónir króna fyrir bleika „golfkerru“ eins og hann kallaði þetta ljósbleika frauð sem í kassanum var.
Hámarkshraði 35 km/klst og fleira vont.
Til að gera langa sögu ögn styttri þá varð „okkar“ maður ósköp leiður. Þetta var notað drasl en ekki fíni sportbíllinn sem hann taldi sig hafa keypt.
Það er rosalega margt í sögunni (og framhaldinu) sem stuðar mann. Eitt atriði er til dæmis það að hann hafði áður verslað við sama fyrirtæki og fékk þá ekki það sem hann pantaði. Rafmótorhjól sem var óttalegt skrifli og alls ekki það sem hann pantaði.
Ekki virðist hann hafa dregið mikinn lærdóm af fyrri viðskiptum við sama fyrirtæki.
Hann birti myndbandið þann 7. ágúst 2020 og létu viðbrögðin ekki á sér standa. Nei, það reyndu margir að benda Inja á að hann væri fífl. En það er eins og að skvetta vatni á gæs. Það er ekkert vit í að reyna að koma slíkum skilaboðum áleiðis.
Fórnarlamb svikara
Sennilega varð Inja líka leiður þegar hann sá allar athugasemdirnar sem gáfu í skyn að hann væri ekki dýpsti bollinn í bollastellinu. Þess vegna bjó hann til annað myndband þar sem hann, í mjög löngu máli, fer yfir öll samskiptin við fyrirtækið því hann þurfti að sýna fólki að hann var „bara óheppinn“ og svikinn af þessu vonda kínverska fyrirtæki. Aftur.
Tröllshrammur eða lítið dekk? Lítið dekk er rétt svar.
Ekki þótti undirritaðri það myndband láta hann líta betur út. Síður en svo!
Samt mátti sjá þar áhugaverð samskipti milli hans og „han Tony“, tengiliðarins hjá Zhenjiang Zibon Electric Vehicles Co., Ltd og hér er sýnishorn
Úr tölvupóstsamskiptum Inja og „han Tony“. Smá mistök hjá þeim þarna í Kína. Skjáskot/YouTube
Þrátt fyrir að Inja hafi, að mínu mati, ekki komið sérlega vel út í myndbandinu þar sem hann reynir að skýra hvernig hann „lenti í“ þessu öllu saman, virðist það ekki vera almenn skoðun. Það var nefnilega heill her stuðningsfólks Inja (fólks sem fylgir honum á YouTube og Instagram) sem virkilega vorkenndi honum, fórnarlambinu, og stóð sko ekki á sama.
Og svei mér ef hann fékk ekki að halda þeim bleika!
Aðrar umfjallanir
Hætturnar leynast víða og hér er hættan í formi tónlistar. Í frétt sem birtist fyrir 42 árum í Vikunni kemur nefnilega fram að vísindamenn hafi komist að því að lífhættulegt geti reynst að „kveikja á stereo-segulbandinu“ í bílnum.
Geta leigubílar orðið frægir? Já, alveg ofboðslega! Sumir verða jafnvel „vinsælli en pizza“. Hver þekkir ekki London-taxann, The Black Cab, eða þann gula í New York? Hér eru þeir og nokkrir til viðbótar.
Flestir ökumenn í dag þekkja „hraðastilli“ í bílnum, stundum kallaður „skriðstillir“ (Cruise Control), sem er búnaður sem heldur bílnum á fyrirfram stilltum hraða, en sem hættir að virka um leið og við snertum fótstig hemlanna svo dæmi sé tekið.
Nýi VW Amarok pallbíllinn snýr aftur með nýju útliti, meiri tækni og hágæða frágangi