Það er algjörlega frábært þegar vel tekst til við að merkja bíla fyrirtækja og setja auglýsingar á bíla. En þegar það klikkar getur það verið alveg agalegt! Reyndar agalega fyndið í sumum tilvikum. Hér eru nokkur býsna klaufaleg dæmi.

Byrjum á rennihurðum sem öllu geta breytt; þar á meðal merkingu: 

image

Já, það getur verið gagnlegt að æfa sig aðeins - þá gerast svona axarsköft sjaldnar!

image

Þarna fór Starbucks nú fyrir lítið... Það syttist alla vega hjá þeim nafnið.

image

Veit nú ekki hvort þessum sé treystandi fyrir einu eða neinu.

image

Það er út í hött að aka eftir neyslu áfengis og það er líka heimskulegt að merkja bíla þegar menn eru í annarlegu ástandi.

image

Ætli þessi útvarpsstöð spili bara léleg lög? Maður spyr sig.

image

Því næst eru það óheppileg skil eða hvers konar samskeyti á ökutækjum en þau eru sjaldnast rennislétt:

image

Opnaðu augun fyrir lækninn! Segðu svo „aaaa“ og rektu tunguna út.

image

Það er akkúrat svona sem maður óttast að líta út ef maður þambar of mikið af þessum heilsuspillandi gosdrykk.

image

Eins og Hobbitinn hafi ekki verið nógu lítill fyrir.

image

Meðfærilegt andlit? Eða bara færanlegt?

image

Hann er eitthvað furðulegur í dag, karlinn. Samsvarar sér helst til illa!

image

Þessi tekur ofan fyrir öllum.

image

Æj, já...

image

...og að lokum hönnun bíls og staðsetning merkingar fer einstaklega illa saman: 

image

Best að skrifa bara sem fæst.

image

Farþegarnir fara örugglega allltaf inn hinum megin.

image

Þú færð kraft úr kókómjólk. Kannski 98 oktan jafnvel?

image

Lok lok og læs og ekki segja orð.

image

„Buxur, vesti, brók og skó, drullusokka...“

image

Einhvers staðar þarf að pústa út. En einmitt þarna?

image

Hann er dýr dropinn.

image


Myndirnar eru héðan og þaðan af veraldarvefnum; einkum úr eldgömlum færslum á reddit, buzzfeed og fleiri svipuðum síðum.

Í svipuðum dúr: 

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is