Það er sannarlega ekki vanþörf á að hreinsa jarðveginn af virkum sprengjum. Þær liggja nefnilega víða. Það er vel við hæfi að nota Ineos Grenadier til að ferja sprengjuleitarfólk um torfarna slóða þar sem t.d. handsprengjur sem finnast eru gerðar óvirkar.
Sir Jim Ratcliffe, stofnandi, forstjóri og einn eigenda Ineos, vildi framleiða bíl sem kæmist „allt“ og væri líkur Land Rover Defender. Ratcliffe er mikill Land Rover karl og þegar framleiðslu á Defender var hætt, tók hann málin í sínar hendur.
Eftir einn ei aki neinn - en smíðum samt bíl
Ofboðslega einfölduð útgáfa af sögunni en ég varð bara að hafa þetta með. Og líka söguna að baki nafninu, hvort sem hún er sönn eður ei:
Burt með bomburnar
Nýverið gekk bílaframleiðandinn til liðs við The HALO Trust - Humanitarian Landmine Removal og er samstarfið hafið eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.
Í Kósóvó hefur gríðarlega mikið verk verið unnið og á 22 árum hefur Halo fundið tæplega 5000 jarðsprengjur þar. Starfinu er hvergi nærri lokið en með því að nýta Ineos Grenadier í verkefnin er unnt að komast á staði hæst uppi í fjöllunum og um leið er hægt að prófa bílinn við hinar ýmsu aðstæður.
Frábært verkefni og sniðugt hjá Ineos að nota Grenadier í sprengjuleitina! Myndbandið er bæði fróðlegt og vel unnið. Hér er það:
Aðrar umfjallanir
Stutt stórra högga á milli stendur einhvers staðar. Við sögðum frá því að Daimler / Mercedes Benz væri að selja verksmiðju sína í Frakklandi sem...
Núna er vetrartímabilið senn að renna sitt skeið og eftir nokkra daga stöndum við sem höfum verið að nota sérstök vetrardekk frammi fyrir því að skipta um og setja sumardekkin undir.
Bílasalar sjá vissulega ýmislegt fleira en misjafna bíla í starfi sínu. Fáir segja frá reynslu sinni opinberlega en inn á milli eru þeir sem deila sögum með öðrum. Eins og í þessu tilviki. Hér er saga sem fær hárin til að rísa…eða detta af!
SEMA-sýningin í Las Vegas sneri aftur úr „Covid-fríi” á þessu ári og er haldin þessa dagana. Bandarísku Stellantis vörumerkin Jeep, Ram, Dodge og Mopar verða áberandi.