Við hér á Bílabloggi fáum oft fyrirspurnir um ýmislegt varðandi bíla eða hvernig skrifað er um bíla, til dæmis hegðan þeirra í akstri.
Yfirstýring og undirstýring eru hagnýt hugtök sem notuð eru til að lýsa næmi bifreiða fyrir stýri. Yfirstýring á sér stað þegar bíllinn snýst meira en ökumaður hefur skipað, á meðan bíll með undirstýringu snýst minna en sem nemur því hvernig ökumaðurinn beygði. Þessar tvær aðgerðir koma upp í samræmi við snúning á stýri og hröðun til hliðar.
Mismunurinn
- Bæði yfirstýring og undirstýring á sér stað vegna mismunar á skriði á aftur- og framhjólum.
- „Skriðhorn“ er í grundvallaratriðum munur á stefnu framhjóla og stefnu bílsins.
- Þegar um undirstýringu er að ræða hefur ökumaður oft minni stjórn á stýrinu. Þegar yfirstýring á sér stað fær það bílinn til að snúa aftendanum þegar ekið er í gegnum beygju.
- Undirstýring á sér stað þegar framhjólin fara að plægjast beint þó að stýrinu sé snúið og yfirstýring á sér stað þegar afturendinn slæst út til hliðar vegna beygjukraftanna.
- Undirstýring er algengari í bílum með drifi á framhjólum á meðan yfirstýring er algengari í bílum með drifi á afturhjólum.
Aðrar umfjallanir
Mercedes mun setja á markað nýja rafknúna gerð árið 2024...
Edison Motors, sex ára sprotafyrirtæki, er líklegur kaupandi SsangYong í Suður-Kóreu. Þá gæti SsangYong orðið framleiðandi rafbíla í framtíðinni.
Ekki snerta! Það ætti ekki að þurfa að skrifa það á bílana í Formúlu 1 en kannski þarf það héðan í frá. Max Verstappen verður brátt 50.000 € fátækari en hann álpaðist til að snerta bíl keppinautarins Lewis Hamilton í gær.
Jæja, allir í Don Cano gallana og strákar mega endilega vera með sítt að aftan! Og stelpur líka. Snjóþvegnar gallabuxur eru velkomnar. Ferðinni er heitið til ársins 1986! Það er nefnilega afmæli.