Renault AIR4 fljúgandi dróni hefur sig til flugs
AIR4, fljúgandi dróni Renault og TheArsenale, gæti gefið vísbendingu um útlit endurfædds 4
Renault hefur stofnað til samstarfs við hönnunarfyrirtækið TheArsenale í Miami með það fyrir augum að búa til rafknúinn fljúgandi dróna sem kallast AIR4.
Yfirbyggingin, sem hefur svipaðar línur og upprunalegi 1961 bíllinn, er eingöngu úr koltrefjum.
Renault segir að „fjölda klukkustunda af útreikningum og prófunum“ hafi þurft til að tryggja að stífni yfirbyggingarinnar væri nægjanleg til að takast á við þrýstinginn og lyftikraftinn sem dróninn myndar.
Tveggja blaða skrúfur eru á hverju horni bílsins, líkt og á dæmigerðum venjulegum dróna, og það eru engin hjól. Hann er knúinn af 22.000 amp-klst litíum fjölliða rafhlöðum sem gefa 90.000 mAh samtals, þó engin spenna sé gefin upp. Heildarkraftur er 95 kg á hverja skrúfu.
Undirvagn bílsins situr í miðju á skrúfugrind drónans. Ökumaður kemst að bílnum með því að lyfta upp skel hans sem er á lömum að framan. Innanrýminu er lýst sem „nýtingarhyggju“ en það á enn eftir að koma í ljós.
Renault heldur því fram að AIR4 hugmyndin hafi láréttan hámarkshraða upp á 95 km/klst og að hann sé fær um að fljúga í allt að 700m hæð og hafi getu til að halla allt að 70 gráður á flugi.
Dróninn getur tekið á loft flugtak á allt að 50 km/klst, en er þó takmarkaður við 14,5 km/klst af öryggisástæðum.
Dróninn getur komið til lendingar á tæplega 11 kílómetra hraða.
AIR4 er hannaður og smíðaður í Frakklandi og verður til sýnis fram að áramótum í Atelier Renault safninu í París.
Árið 2022 verður þessi „fljúgandi R4“ sýndur í Miami, New York og Macau.
Renault 4 er talinn vera einn af upprunalegu bílunum sem sannarlega var hægt að kalla „bíl fólksins“ með átta milljónir seldra eintaka í meira en 100 löndum á 30 ára tímabili. Síðasta eintakið af bílnum var framleitt í lok árs 1992.
(frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
PARÍS - Dacia, lággjaldavörumerki Renault Group, er að setja á markað nýjar útgáfur af söluhæstu minni bílunum sínum, að þvía ð fram kemur í frétt hjá Automotive News Europe í dag...
Akureyringurinn Þór Þormar er engum líkur. Eða jú annars; hann er nauðalíkur tvíburabróður sínum. Nema hvað! Hann er áhugaverður karakter, alltaf brosandi og mikill keppnismaður. Þór er tvöfaldur Íslandsmeistari í torfæru og í fyrradag setti hann heimsmet.
Ný Evrópuvottun á bílaviðgerðum á Íslandi tryggir fulla árekstravörn, óskerta verksmiðjuábyrgð og 3ja ára ábyrgð á tjónaviðgerðum.
oyota Corolla af 1988 árgerðinni seldist nýverið á 17.000 dollara í Bandaríkjunum. Toyota Supra ´87 seldist á 89.000 dollara og ´94 árgerðin af Supra Turbo á 140.000 dollara. Úr gulli eða ekki, það skiptir engu. Það er nefnilega slegist um gamlar Toyotur í góðu standi.