Í síðustu viku þurrkuðum við rykið af gömlum og góðum bílaatriðum í íslenskum kvikmyndum og íslensku sjónvarpsefni. Það var svo hressandi að finna karaktera á borð við Núma í gömlu Spaugstofunni að það væri synd að láta þar við sitja.
Í það skiptið tók undirrituð fyrir myndbrot með Núma, sem er karakter úr smiðju Arnar Árnasonar, frá árinu 1995/1996 og var hann að kaupa sér bíl. Verst hve myndgæðin voru lítil í þeirri „klippu“. En skemmtilegt var það engu að síður!
Hér er hins vegar hinn fámáli Númi í ökukennslu og er í fókus og allt! Þetta er úr ´92 á Stöðinni og atriðið um 50 sekúndur, sem er einmitt passlegur tími til að koma manni í ljómandi gott skap. Númi, „peppaður að vanda“, gjörið svo vel!
Aðrar umfjallanir
Eigendur rafbíla verða óneitanlega varir við að drægni þeirra minnkar í svona langvarandi kuldatíð - hér eru nokkur ráð frá FÍB
GM bauð nýlega fjölmiðlum í „rafbíla-vinnustofu“ sína í Michigan, þar sem þeir sýndu lítinn rafmagns pallbíl...
Volvo vöru- og flutningabílar tróna á toppnum á Íslandi fyrstu sjö mánuði ársins með 33,7% hlutdeild og 28 nýja selda vörubíla yfir 10 tonn og er...