Ken Block virðist alltaf vera að gera eitthvað skemmtilegt. Þess vegna er hann sennilega svona kátur!
Það er fjör hjá okkar manni! Mynd/Skjáskot/YouTube
Í myndbandi sem hann birti rétt áðan, lætur hann „reyna á“ fjöðrunina í þessu sturlaða farartæki. Það er í raun og veru magnað að horfa á þetta fyrirbæri. Það er best að hafa ekki fleiri orð um það en eitt vil ég þó nefna sem er óvenjulegt við þetta myndband: Í því sést myndatökuliðið sem er út um allt að mynda þennan síkáta ökumann. Þannig að hér er smá sýnishorn af því hvernig myndböndin hans Ken Block verða til.
Myndbandið er langt en hér byrjar það á fljúgandi ferð:
Þeir sem vilja fá útlistun á öllu tæknistöffinu geta byrjað hér (sama myndband sko - byrjar bara fyrr):
Aðrar umfjallanir
Vegna kórónuveirufaraldursins hefur bílaframleiðsla víða um heim stöðvast, verðmæti bílafyrirtækja hefur fallið...
Ekki nóg með að fullorðna fólkið megi allt heldur skemmir það líka allt. Þeir Simon Blackburn, Kevin Hyatt og Colin Smithson frá Sheffield voru rúm tvö ár að byggja þennan Jeep.
Akureyringurinn Þór Þormar er engum líkur. Eða jú annars; hann er nauðalíkur tvíburabróður sínum. Nema hvað! Hann er áhugaverður karakter, alltaf brosandi og mikill keppnismaður. Þór er tvöfaldur Íslandsmeistari í torfæru og í fyrradag setti hann heimsmet.
Núna er orðið ljóst á nýi Bronco kemur til Brimborgar – á þessari stundu er að vísu ekki ljóst hvenær það verður. En vestur í Ameríku var verið að tilkynna um nýja viðbót við Bronco-línuna.