2023 Mazda CX-50 sýndur sem millistór sportjeppi og tvinngerð væntanleg
Hönnunin lítur út fyrir að vera harðgerðari og öflugri útgáfa af CX-5. Bíllinn er með breiðari bretti með stærri hjólboga úr plasti. Grillið er með áberandi ramma og hægt að fá það í gljáandi svörtu.
Það eru jafnvel sportlegir mattir svartir límmiðar í boði fyrir vélarhlífina.
Mazda benti einnig á að afturhurðirnar hafi verið hannaðar sérstaklega og opið verður breiðara til að auðveldara sé að stíga á stigbrettið til að komast að þakgrindinni.
Innréttingin minnir á aðra Mazda-bíla, með stílhreinu mælaborði og stórum „földum“ lofttúðum. Skemmtilegar áherslur í útliti, eins og lóðréttu loftopin umhverfis mælaborðið sjálft, gera það einstakt og aðeins ferkantaðra í lögun. Það er einnig með nýjum innri lit sem kallast Terracotta.
Fjórhjóladrif verður staðalbúnaður á öllum gerðum, þar sem þessari gerð er stefnt að því að vera hæfari útilífsbíll og torfæruhæfari en aðrar Mözdur. Og ef það hljómar undarlega að Mazda sé að skoða „virkari lífsstíl“ farartæki, ætti það ekki að gera það.
Margar akstursstillingar verða líka fáanlegar, meira en bara Normal og Sport. Viðbæturnar eru dráttarstilling og torfærustilling. Að sögn Dave Coleman verkfræðings Mazda er aðeins boðið upp á eina torfærustillingu til að einfalda hlutina.
Það gerir nokkrar áhugaverðar breytingar, eins og G-Vectoring kerfið, áhrifameira, en það er kerfið sem dregur úr togi þegar gefið er inn til að færa þyngd yfir á framhjólin fyrir meira grip. Búnaðurinn tengir einnig fjórhjóladrifið betur til að halda hjólum áfram að snúast á sama hraða fyrir stöðugleika.
Í brekkum kemur „brekkubremsa“ við sögu, hægagangur er hækkaður til að skipta mjúklega yfir í inngjöf og vökvagírinn læsist ekki eins fljótt til að hjálpa bílnum að komast yfir ójöfnur.
Ýmislegt fleira áhugavert er að finna. CX-50 verður fyrsti Mazda-bíllinn sem boðinn verður með víðáttumiklu sóllúgu og hann verður sá fyrsti sem framleiddur er í nýju sameiginlegu Mazda- og Toyotaverksmiðjunni í Alabama í Bandaríkjunum. Bíllinn fer í sölu næsta vor og verð verður líklega tilkynnt þegar nær dregur að hann komi á markað.
CX-60 og CX-80 munu koma á Evrópumarkað
Miðað við fréttir núna er greinilegt að þessi CX-50 muni koma á Bandaríkjamarkað, en aðrar gerðir koma á okkar markaðssvæði í Evrópu
Aðrar umfjallanir
Þetta dómsdagsskrapatól hefur farið 2 milljónir kílómetra. Hvílík ruslahrúga á hjólum, ef hjól skyldi kalla! Hvað sem gengið hefur á þá lítur þessi Mazda 323 ´91 út fyrir að hafa lagt að baki 20 milljónir kílómetra, orðið fyrir loftsteinadrífu, eldgosi og sogast inn í skýstrók.
Alrafmagnaður Fiat 500e verð frumsýndur í Bandaríkjunum á bílasýningunni í Los Angeles á dögunum
Waldorf Astoria? Hljómar vel! Það er fleira tengt því fræga hóteli en „jólasalatið“ sem mörg okkar kalla Waldorfsalat. Já, til að mynda hefur Chevrolet Nomad verið tengdur við Waldorf Astoria frá því hann var kynntur þar á sýningu árið 1954.
Greinilegt er að VW hefur ekki fengið nóg af crossover-sportjeppum. Þegar er VW með T-Cross og T-Roc, og nú bæta þeir þeim þriðja við!