Sex öxlar, tólf hjól og tvö til viðbótar. Þá erum við komin með pýramída gott fólk! Stóra spurningin sú hvort hægt sé að aka pýramída.
Þegar svona risatrukkur er smíðaður er auðvitað nauðsynlegt að hafa góðar teikningar til að fara eftir. Eða teikningu.
Hérna er eitt það skemmtilegasta og jákvæðasta myndband sem ég hef séð í lengri tíma. Það er gott að líta aðeins upp úr dumbungi og hörmungum heimsins, gefist þess kostur.
Ein frábær leið til þess að hugsa um eitthvað skemmtilegt (ekki endilega „fallegt“ í þessu tilviki) er t.d. að horfa á þennan dásemdar-karl sem útskýrir allt sem hann er að brasa í kringum þessa Lödu. Lödu sem hann ætlar að gera að fjórtán hjóla monster truck.
Þetta myndband (fyrra myndbandið - það er nefnilega framhald sem skýrist þegar þar að kemur) er í lengri kantinum og því datt mér í hug að benda á að óþolinmóðir geta rúllað inn á sjöundu mínútu. En þeir missa þá af ýmsu misgáfulegu!
Tíu dögum síðar kom í ljós að ekki þurfti að æða alla leið til Noregs til að prófa „tryllitækið“ því Rússland er jú voða stórt land og alveg hægt að finna landslag sem hentar til hvers kyns prófana. Og það gerðu þeir:
Aðrar umfjallanir
Núna þegar ferðamannatíminn stendur sem hæst og Íslendingar flykkjast um landið sem aldrei fyrr er ekki úr vegi að kíkja á þá staði sem bílamenn ættu...
Hér er ein frétt fyrir þá sem hafa áhuga á BMW - því myndum af því sem lítur út fyrir að vera næsta kynslóð BMW 2 Series Coupe hefur veið lekið á netið...
Það er ekki oft sem bílar á borð við þennan eru til sölu, enda er þetta afar merkilegur safngripur. Þetta er bíllinn sem Michael Schumacher keppti á 1998 í Formúlu 1. Reyndar varð Mika Häkkinen heimsmeistari það árið en bíllinn er samt merkilegur.
Löngu áður en Íslendingar fullkomnuðu útlit jeppa eins og Toyota Landcruiser með því að lyfta þeim upp á 44“ dekk og gefa þeim breiða kanta, reyndi Bandaríkjamaður að nafni Thomas Poulter að smíða hinn fullkomna bíl fyrir Suðurheimskautið.