Ný græn þruma frá Audi
Nú hefur Audi hægt og rólega verið að leka upplýsingum um ein geggjaðasta „sport-sedan“ sem fram hefur komið. Nú hefur tryllitækið hins vegar verið opinberlega kynnt, fullmálað og tilbúið í slaginn. Og það hefur ekkert verið slegið af í RS lúkkinu að innan sem utan og frekar verið lagt í en dregið úr.
Vísar í Quattro Coupe
Grillið hefur stækkað og framhlutinn ber sterkan keim af Audi Sport Quattro Coupe.
Svört glansáferð skipar stóran sess í grillinu og skapar þannig sportlega stemningu.
Framljósin eru smart. Bíllinn er búinn Matrix LED ljósum og birta þau RS3 í sífellu þegar gengið er frá bílnum eða komið að houm. Keppnisfáni kappakstursbrautarinnar er heldur ekki langt undan því LED ljós varpar köflóttu mynstri hans á götuna frá hliðarspeglunum. Í akstri má sjá flaggið í horni framljósanna. Geggjað flottur og ómissandi fídus.
Stuðararnir hafa fengið uppfærslu, þeir eru breiðari og að framan eru stór loftop beggja megin í stuðaranum og frambrettum. Spoilerkit gefur bílnum sportlegra útlit og lætur líta út fyrir að hann sitji lægra á götunni.
Takið eftir RS lógóinu og tíglóttum fánanum.
Kappakstursbúnaður
Það er koltrefja (e. carbon fiber) lúkk á mælaborðinu. Vel formuð sportsætin svíkja örugglega engan sem ætlar að gefa í á þessu tryllitæki og stýrishjólið er slétt að neðanverðu.
Upplýsingaskjárinn gefur allskyns „kappaksturs“ upplýsingar eins og gírskiptiljós, þyngdarhröðunarmæli (e. g-force), hröðunartíma, brautartíma og jafnvel kvartmílutíma.
Hægt er að velja um Nappa leðuráklæði með grænum eða rauðum saumi.
3,8 sek. í hundrað
Það hefur talsvert verið rætt um frammistöðuna. Förum yfir helstu atriðin. RS-3 verður með 2,5 lítra, 5 strokka, línuvél með túrbínu sem gefur 401 hestafl og togar 229 Nm. Það þýðir að kagginn er að ná 100 km/klst. á 3,8 sek.
Áætlað er að hægt verði að panta bílinn í Evrópu í ágúst með afhendingu síðar í haust. RS-3 verður í boði sem sedan og hatchback í Evrópu en aðeins sem sedan í Bandaríkjunum.
Byggt á grein Autoblog - myndir Audi.
Aðrar umfjallanir
Volkswagen er með áætlanir um afbrigði af ID4 rafbílnum sínum sem aðeins notar rafhlöður, sem mun hafa meiri kraft, sportlegri hönnun og fjórhjóladrif...
Kunnur skákmaður og lögfræðingur bílaleigu í bænum stóðu sig með prýði þegar þeim tókst að handsama fálka sem fékk sér síðbúinn hádegisverð í fjöruborðinu við Skúlagötuna. Skapaðist umferðarteppa hin mesta vegna fálkans.
Eins og flestir vita sem ætla sér að kaupa notaðan bíl þá er margt að varast og að mörgu að hyggja. En nú hefur löggjafinn bætt við enn einu atriðinu sem væntanlegur...
Kvöldið sem nýr Ford Bronco var frumsýndur og pöntunarvefurinn opnaður seldust allir First Edition bílarnir upp alls 3500 bílar sem allir fóru á sama kvöldinu...