Nýr Opel Astra afhjúpaður í felulitum fyrir frumsýningu
- Nýi bíllinn mun keppa við VW Golf með tengitvinndrifrás og í stationútgáfu
Opel hefur sent frá sér mynd í felulitum af næstu kynslóð Astra fyrir frumsýninguna sem verður eftir nokkrar vikur.
Nýr Astra, 11. kynslóð af bílnum, færist yfir á EMP2 grunn Stellantis frá GM grunni sem bíllinn var byggður á áður og verður með tengitvinnbúnði til viðbótar við brunavél.
Bíllinn kemur á markað seinni hluta þessa árs, segir Opel.
Nýi bíllinn er systurgerð nýja Peugeot 308, sem mun fá rafknúinn valkost frá 2023. Opel hefur ekki staðfest að Astra verði einnig í boði sem rafbíll. 308 er fáanlegur í tveimur tvinnbílagerðum auk bensín- og dísilútgáfa.
Núverandi Astra er byggð í Gliwice í Póllandi og Ellesmere Port á Englandi.
Opel sagði í þriðjudag í fréttatilkynningu að Astra væri að ljúka lokaprófunum, þar á meðal vetrarprófunum í Lapplandi og prófunum á vegum nálægt Ruesselsheim, og búa sig undir gerðarviðurkenningu fyrir sölu.
Volkswagen Golf leiddi þennan stærðarflokk, með 283.651 sölur.
Gert er ráð fyrir að tengitvinnútgáfan af Astra verði með sömu forskriftir og 308 „systkinið“, sem þýðir tvö aflstig.
(frétt á vef Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Dagar hf. tóku nýverið í þjónustu sína fjórtán nýja rafbíla af gerðinni Renault Zoe frá BL
Ótrúlega mörgum bílafyrirtækjum hefur verið bjargað af einni gerð - þetta eru frægustu
Samkvæmt frétt á vef INSIDEEVs seldi Stellantis alls 385.665 bíla í Bandaríkjunum á þriðja ársfjórðungi 2022, sem er 6% minna en fyrir ári síðan...
Hyundai á Íslandi kynnir nk. laugardag milli kl. 12 og 16 nýjan og endurhannaðan i20 sem tvívegis hefur unnið Gullna stýrið hjá Auto Bild...