Frumsýningar og sumarfjör
Það var fullt um að vera í bílaumboðunum um helgina. Við hjá Bílabloggi fórum á rúntinn og tókum hús á þeim umboðum sem auglýstu frumsýningar og sumarfjör.
Sumarferð Heklu 7.-11. júní
Það var sumarstemning hjá Heklu en þeir kynntu sína nýjustu fáka í rafbílaflokki. Þar mátti sjá hinn splunkunýja ID.4 GTX sem er fjórhjóladrifin útgáfa af ID.4.
Bíllinn sá er verulega flottur, allur samlitur með glæsilegri innréttingu og 300 hestfla mótor.
Verðið á GTX er frá 6.990 þús. Hér getur þú séð meira um þennan glæsilega bíl.
Volkswagen ID.4 GTX, fjórhjóladrifinn rafmagnsbíll.
Nýi GTX bíllinn er með aðeins stærri skjá en ID.4.
Vel formuð sætin halda vel utan um mann og eru afar þægileg.
Ferðadagar BL
Sölufólk BL var í toppstuði og sumarskapi. Þar var boðið upp á léttar veitingar um leið og menn gátu skoðað stútfullan sal af nýjum og flottum bílum.
Þar má nefna glæsilega línu Renault sem býður nú Megane og Capture í tengitvinnútgáfum og Clio sem tvinnbíl svo eitthvað sé nefnt.
Hinn nýi MG EHS, tengitvinnbíll hefur komið sterkur inn á markaðinn enda búinn veglegum staðalbúnaði, frábærum aksturseiginleikum og fallegri hönnun innanrýmis.
Hinn vinsæli Renault Megane fæst nú í tengitvinnútgáfu.
Renault Captur í tengitvinnútgáfu.
Renault Clio í tvinnútgáfu.
Vel heppnaður og flottur MG EHS, tengitvinnbíllinn hefur slegið í gegn.
Nissan Leaf er einn af vinsælustu rafbílum á Íslandi um árabil.
Tilbúinn í hálendið.
BL býður veglega aukahlutapakka á Ferðadögum BL.
BL býður úrval aukahluta sem breikka notkunarsvið bílsins. Nú standa ferðadagar yfir hjá BL þar sem boðið er upp á veglega ferðapakka þar sem þú getur valið aukahluti sem nýtast í ferðalaginu að andvirði 300 þús. króna.
Nýr Mustang Mach E og Citroen Ami
Það er alltaf gaman að koma í Brimborg. Í salnum hjá þeim mátti sjá nýbónaðan og glansandi Mustang Mach E. Mustang Mach E bíllinn var að lenda í umboðinu og var bónið varla þornað á þessum í salnum.
Mustang Mach E: Stórglæsilegur og markar tímamót í rafbílaflórunni.
Takið eftir hallandi þaklínunni - hún virðist engin áhrif hafa á plássið afturí. Við settumst inn og þar var nóg pláss - bæði fóta- og höfuð.
Mustang Mach E: Hér má sjá ættarsvipinn.
Ford Mustang Mach E er glæsilegur og vel búinn ferða- rafmagnsbíll.
Alveg í hina áttina er það svo hinn stórsniðugi Citroen Ami. Sá „bíll” er bara krúttlegur og vekur óskipta athgli fyirr öðruvísi útlit. Drægni er um 75 km. á fullri rafhlöðu og hámarkshraði er um 40 km/klst. Þessi yrði án efa skemmtilegur í borginni.
Citroen Ami er náttla bara krúttbomba.
Það er örugglega auðvelt að leggja í lítil og þröng stæði.
Citroen Ami: Hér er það einfaldleikinn sem ræður ríkjum.
Nýr Rexton
Næsti viðkomustaður var Bílabúð Benna. Þar var kynntur nýr Rexton og sá ekki í lakari kantinum. Rexton hefur hlotið titilinn „Bestu kaupin” fjórða árið í röð samkvæmt 4x4 Magazine í Bretlandi.
Verðið á þessum glæsilega bíl er frá 8.490 þús. sem teljast verður mjög gott fyrir bíl í þessum gæða- og stærðarflokki.
Ssangyong Rexton: Öflugur og sterklegur og oft kallaður Konungurinn.
Grillið sver sig í ætt nýrrar línu í hönnun bílgrilla í dag.
Ssangyong Rexton: Innréttingin er afar vel heppnuð og vönduð.
Við bíðum svo spennt hjá Bílabloggi að fá til reynsluaksturs nýjan Opel Mokka. En hann vakti athygli í salnum hjá Benna um helgina.
Opel Mokka.
Uppfærður Hyundai Kona
Nú varð ferðinni heitið í Kauptún. Fyrsti viðkomustaður: Hyundai á Íslandi. Það var margt um manninn í Hyundai salnum og vel tekið á móti okkur.
Flottur framendi á nýjum Hyundai Kona.
Mælaborðið hefur verið uppfært og lúkkar einstaklega vel.
Hyundai Kona: LED.
Flottari sæti. Þau halda mjög vel við og eru sérlega þægileg.
Hyundai Kona: Nú getur þú fengið þinn Kona tvílitan.
Kona hefur án efa verið einn vinsælasti rafbíllinn á Íslandi um árabil og sá nýi er verðugur keppinautur í flórunni sem er að koma á markað í dag. Nú getur þú fengið þinn Kona tvílitan – til dæmis svartan með hvítum toppi.
Við tókum einnig eftir að sportjeppinn Tucson vakti mikla athygli viðstaddra enda frábær bíll. Hér má lesa um reynsluakstur okkar á nýjum Tucson.
Nýr Hyundai Kona er á frábæru verði eða frá 5.290 þús. með 39 kW/st. rafhlöðunni og Premium útgáfan er á aðeins 6.090 þús. með 64 kW/st. rafhlöðu.
Allir í sumarskapi hjá Toyota
Það vantaði ekki gleðina hjá Toyota í Kauptúni. Þar nutu gestir og gangandi veitinga um leið og þeir ræddu kaup og kjör við sölumenn Toyota. Þar á bæ var sannkölluð sumarhátíð.
Þar mátti sjá Meistara Yaris á stalli en sá bíll hlaut titilinn Bíll ársins í Evrópu árið 2021 og er vel að titlinum kominn.
Flottar útgáfur af RAV4 Hybrid voru í salnum ásamt hinum nýja RAV4 PHEV sem er rúmlega 300 hestöfl.
Toyota RAV4: Hin vinsæla hybrid tækni Toyota hefur sannað sig meðal ánægðra Toyota eigenda.
Toyota RAV4 PHEV: Þessum er stungið í samband.
Meistari Yaris.
Toyota Yaris: Bíll ársins í Evrópu árið 2021.
Sölumenn Toyota voru í samningastuði um helgina.
Myndir og texti: Pétur R. Pétursson og Gunnlaugur Steinar Halldórsson
Aðrar umfjallanir
Fyrir nokkrum áratugum, raunar ansi mörgum, átti sá sem þetta skrifar þann draum, líkt og margir strákar á þeim tíma að eignast skellinöðru...
Hætturnar leynast víða og hér er hættan í formi tónlistar. Í frétt sem birtist fyrir 42 árum í Vikunni kemur nefnilega fram að vísindamenn hafi komist að því að lífhættulegt geti reynst að „kveikja á stereo-segulbandinu“ í bílnum.
Það er sannarlega ekki vanþörf á að hreinsa jarðveginn af virkum sprengjum. Þær liggja nefnilega víða. Það er vel við hæfi að nota Ineos Grenadier til að ferja sprengjuleitarfólk um torfarna slóða þar sem t.d. handsprengjur sem finnast eru gerðar óvirkar.
Toyota, sem fram að þessu hefur verið meistari tvinnbílanna, er að gefa til kynna að fyrirtækið ætli að taka upp rafknúnar drifrásir með því að sýna