Sýning og sigurhátíð hjá Toyota á laugardag:
Yaris – Bíll ársins 2021
Laugardaginn 24. apríl verður sýning og sigurhátíð hjá öllum viðurkenndum söluaðilum Toyota þar sem því verður fagnað að Yaris var nýlega útnefndur bíll ársins í Evrópu 2021.
Síðan þá hafa meira en 14.000 Yarisar selst á Íslandi enda er Yaris bíll sem höfðar til allra aldurshópa og hentar til margvíslegra nota.
Yaris er með nýja spræka bensínvél og 4. kynslóð Hybridkerfs Toyota sem tryggir lítinn útblástur og litla bensíneyðslu. Hybridkerfið var nefnt sérstaklega i úrskurði dómnefndar um bíl ársins vegna lítils útblásturs og þæginda í akstri.
Gjafabréf frá Icelandair að verðmæti 100.000 kr. fylgir hverjum Yaris Hybrid sem selst á sýningunni á laugardag.
Sýning og sigurhátíð verður hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Akureyri og Selfossi á laugardag kl. 10 – 16 og þá má einnig reynsluaka þessum sívinsæla bíl.
Aðrar umfjallanir
Nissan 370 Z Twin túrbó (rúm 700 hö) og Tesla Model S Plaid (rúm 1000 hö) fóru í spyrnu. Teslan hafði betur í þeirri fyrri en svo… Já, framhaldið er hér:
Einn af lesendum Bílabloggsins Hafliði Birgir Ísólfsson sendi okkur myndir af gömlum bílum í Úkraínu sem urðu á vegi hans þar...
Þetta er nýr hugmyndabíll sem kallaður er Vision Starburst. Nafngiftin á svo sem ekkert skylt við ávaxta karamellurnar ef þú ert eitthvað að pæla í því. Heldur er nafnið...
Það er vetur. Á það vorum við rækilega minnt um nýliðna helgi. Úti er frost og snjór, allir vegir á korti Vegagerðarinnar eru gulir eða bláir...