Á tæplega fjögurra kílómetra dýpi, um 600 kílómetra suðsuðaustur af Nýfundnalandi er flak skipsins Titanic. Þar hefur það verið í 109 ár og til ársins 1985 var nákvæm staðsetning þess ekki vituð.
Þá kom nú ýmislegt merkilegt í ljós. Margt af því sem sökk með skipinu nóttina örlagaríku í apríl 1912 hafði varðveist á hafsbotni.
Þúsundum muna hefur verið bjargað, ef svo má að orði komast, úr undirdjúpunum og má þar til dæmis nefna snyrtivörur, vínflöskur, borðbúnað, spegla, ferðatöskur og öryggishólf.
Titanic í höfninni í Southampton að morgni föstudagsins 10. apríl 1912
Franskur eðalvagn
Árið 1912 voru bílar sannarlega orðnir nokkuð algengir, í það minnsta á meðal efnameira fólks. Það kemur því kannski á óvart að samkvæmt farmskrá Titanic mun einungis hafa verið einn bíll um borð í skipinu.
Í farmskrá skipsins var ljóst að bíll af gerðinni Renault var um borð. Hér er óskýrt sýnishorn af síðu úr þeirri skrá.
Í lest skipsins, var bíll, Renault Type CB Coupé de Ville árgerð 1912. Honum hafði verið komið fyrir í eins konar „kassa“ og verið hífður um borð í Southampton. Honum var víst vandlega „pakkað inn“ enda langt ferðalag framundan og átti eðalvagninn að komast heill á áfangastað.
Í trékassa í lest Titanic var bíllinn og er þessi mynd ein afar fárra sem til eru af franska eðalvagninum sem endaði á hafsbotni tveimur dögum síðar
Þessi tiltekni Renault var með 2.6 lítra vél sem skilaði 25 hestöflum og náði bíllinn hátt í 60 kílómetra hraða á klukkustund. Hann þótti afar glæsilegur og kostaði skildinginn.
Bíll sömu gerðar var fyrir nokkrum árum seldur á uppboði fyrir 269.500 bandaríkjadali.
Svona leit hann út, Renault CB Coupé de Ville, árgerð 1912
Carter og franski bíllinn
William Ernest Carter hét maður nokkur frá Bryn Mawr í Pennsylvaníu. Hann var vellauðugur kolakaupmaður og vorið 1912 ferðaðist hann um Evrópu ásamt konu sinni, Lucile, tveimur börnum, tveimur hundum, þjónustustúlku (einkakennara) og einkaþjóni. Börnin hétu í höfuðið á foreldrunum: William og Lucile. Stúlkan var þrettán ára gömul og pilturinn ellefu ára þegar dvöl fjölskyldunnar í Evrópu lauk en í heilt ár höfðu þau verið búsett á Englandi.
Það var því spenna í lofti þegar fjölskyldan fór um borð í Titanic, skipið „ósökkvandi“, í Southampton.
Nú færu þau heim á ný og það í flottasta skipi heims! Vart þarf að taka fram að fjölskyldan ferðaðist á fyrsta farrými (fargjaldið var 120 pund sem einhver talnaglöggur reiknaði út að samsvaraði um 77.000 dollurum í dag) og voru klefar B-96 og B-98 merktir fjölskyldunni. Þjónustufólkið var á öðru farrými.
Niður fór skipið og bíllinn með
Herra Carter og frú snæddu síðasta kvöldverðinn á Titanic með skipstjóranum og fleirum. Hryllingurinn, fáeinum klukkustundum síðar, þegar skipið rakst á ísjaka, er á flestra vitorði.
Það var glæsilegt en ósökkvandi var það ekki
Bíllinn var í fremri lest skipsins og hefur hann aldrei fundist. Margir hafa leitað, nú síðast árið 2020, en líkurnar á að bíllinn hafi varðveist á hafsbotni eru ef til vill ekki miklar. Nema að honum hafi verið „pakkað“ alveg svakalega vel inn.
Einhverjir sem kannað hafa góssið í kringum flakið telja að á myndum megi sjá hluti sem líkjast bílstýri og speglum en ekkert hefur verið sannað hvað það snertir.
Það er þá sennilegra að eðalsteinar fjölskyldunnar finnist í iðrum einhverra djúpsjávarlífvera því auk bílsins (var kannski í sömu „pakkningu“) var afar fágætt eintak af The Rubaiyat Omars Khayyams alsett eðalsteinum.
Tryggingafé fyrir bíl og hunda
Því miður hefur saga bílaáhugamannsins Williams Ernests Carters ekki komið sérlega fallega út. Hann bjargaðist, jú, en höfum í huga að konur og börn gengu fyrir þegar verið var að koma fólki í björgunarbátana. Árið 1997 var greint frá því í Ameríkunni stóru, að Carter hafi verið mikið í mun að bjarga sjálfum sér og það jafnvel á kostnað annarra.
Var haft eftir sjónarvottum að sá síðarnefndi hafi troðið sér í björgunarbátinn og var síðar meir nánast hakkaður í spað opinberlega fyrir að hafa bjargað eigin skinni eins og rola í stað þess að hjálpa drukknandi fólki.
Kona Carters, börn og þjónustustúlka komust í björgunarbát 4 og voru á meðal 28 kvenna og barna sem komust af á þeim bát.
Jæja, ekki leið á löngu þar til Carter krafði tryggingafélagið Lloyd´s í London um 5000 dollara fyrir bílinn fína og 200 dollara fyrir hundana tvo sem drukknuðu.
Jú, peninginn fékk hann en fjölskyldan var, að því er sagt var, ekki stolt af fjölskylduföðurnum og forgangsröð hans. Einu og hálfu ári síðar skildu hjónin og fjölskyldan tvístraðist.
Dauðakveinin sem smám saman þögnuðu þegar fólkið sökk ofan í hina votu gröf, undir stjörnubjörtu himinhvolfinu.
Frásagnir þeirra farþega sem björguðust þegar Titanic sökk birtust m.a. í þessu blaði sem dagsett er 20. apríl 1912.
Þá verður veraldlegur auður hjóm eitt en aumt er til þess að hugsa að flestir þeirra sem fórust voru farþegar af þriðja farrými. Af 324 farþegum fyrsta farrýmis björguðust 202, af 284 á öðru farrými 115 og af 709 farþegum þess þriðja björguðust 178.
Fyrstu tölurnar. Flestir sem fórust voru af þriðja farrými en flestir þeirra auðugustu komust í björgunarbáta og lifðu
Greinar af svipuðum toga sem þér gæti þótt áhugaverðar:
Aðrar umfjallanir
Hann er 3,7 sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst. Það er gott. Hann er afturhjóladrifinn. Það er mikið gott. V10, já það er vel. Ég hef ekki komist í tæri við þennan bíl. Það er slæmt. Eiginlega afleitt. Samt veit ég að hann hljómar vel. Hér er meira að segja „tóndæmi“. En þetta sýnist mér einmitt vera svona bíll sem mann vantar. Sárlega.
„Spurðu Max að hverju sem er,“ segir í Twitterfærslu Red Bull liðsins í Formúlu 1. Og inn hrúgast spurningarnar. Nú er tækifæri til að spyrja heimsmeistarann um hvað sem er; allt frá því hvort hann borði súrar gúrkur til þess hvort hann stilli bremsurnar oft í keppni.
Land Rover fagnar mikilvægum afmælisdegi í dag: Range Rover er 50 ára. Til að marka tilefnið hefur framleiðandinn sent frá sér...
Samkvæmt frétt frá Bloomberg ók Mercedes-Benz rafbíll meira en 1.000 km frá Þýskalandi til frönsku rívíerunnar á einni hleðslu og færði...