Fjölgun í rafmagnsbílagerðum
Tvær nýjar rafbílagerðir eru kynntar til leiks um helgina. Mikil eftirvænting hefur verið eftir byltingakenndum Skoda Enyaq sem lentur er í Heklu bílaumboði við Laugaveginn.
Sérlega fallegur rafmagnaður Enyaq frá Skoda. Takið eftir hönnun á felgum.
Þessi nýi Skoda Enyaq er enginn venjulegur rafmagnsbíll. Um er ræða fullvaxinn mjög vel búinn bíl. Uppgefin drægni bílsins skv. WLTP staðlinum er frá um 400 km. upp í 520 km. Skoda Enyaq verður boðinn með tveimur mismunandi rafmóturum, 180 og 204 hestafla. Tvær rafhlöður verða í boði, 58 kWh og 77 kWh. Verðið á Enyaq er frá 5.790 þús.
Sterklegar línur.
Einstakt efnisval í innréttingu
Fyrsti bíllinn er kominn inn á gólf í Heklu umboðinu við Laugaveg og sá lítur vægast sagt vel út. Hvítur fer þessum bíl sérlega vel og innréttingin er meiriháttar. Það er svo sannarlega tilhlökkun hjá okkur að fá að reynsluaka þessum glæsilega bíl þegar fyrstu eintökin lenda.
Innrétting, hönnun og efnisval er vægast sagt í flottari kantinum.
Hér er barnastóll sýndur í aftursæti Enyaq.
Ferskir straumar hjá Mercedes Benz
Það var frumsýning hjá Öskju á nýjum og glæsilegum Mercedes Benz EQA. Sá bíll er boðinn með um 66 kWh rafhlöðu og með drægni upp á rúmlega 420 km. skv. WLTP staðlinum. Um er að ræða mjög vel útbúna bíla sem einnig er hægt að sérsníða eftir óskum viðskiptavinarins.
Nýr EQA í þremur mismunandi útfærslum í salnum hjá Öskju.
Hægt er að fá bílana bæði með fram- og fjórhjóladrifi og allt að 285 hestöflum. Nýi Benzinn er búinn MBUX margmiðlunarkerfi. Innréttingin er sérlega vönduð eins og þeim hjá Benz er von og vísa. Mælaborðið er síðan nokkurskonar panorama tölvuskjár, kýrskýr og sérlega einfaldur í notkun.
Slétt gólf við stuðarann gerir alla hleðslu þægilegri.
Flott mælaborðið er með stórum og kýrskýrum panorama skjá.
Glæsilegt mælaborð með nýjustu tækni frá Mercedes Benz.
Verðið á nýjum Mercedes EQA er frá 6.790 þús. og upp í 9.390 þús.
Aðrar umfjallanir
Einhvern veginn efast greinarhöfundur um að ökumenn hugsi, þegar ekið er yfir brú: „skyldi hún halda?“ Nei, vonandi er það ekki áhyggjuefni vegfarenda, enda langt síðan að brú hefur „pompað“ niður hér á landi.
Hann heitir Greg en kannski betur þekktur sem Mr. Car Sound. Ekki veit maður hvað þessi náungi fær sér í morgunmat en það gæti verið steinolía, nítró eða bensín. Aldrei hef ég heyrt nokkurn mann framkalla bílhljóð eins og fínstillt eðalvél. Foreldrar hans hljóta að vera á dekkjum eða eitthvað magnað!
Það eru nokkur atriði sem er eiginlega bara bannað að segja við bifvélavirkja. Eða það mælist öllu heldur ekki vel fyrir. Og sömuleiðis eru atriði sem gætu a) farið mjög í taugarnar á þeim eða b) glatt þá. Ekki það að bifvélavirkjar séu eitthvað oftar pirraðir en annað fólk. En förum aðeins yfir þetta.
Í kvöld hittust meðlimir Fornbílaklúbbs Íslands á planinu hjá Tjarnargrilli í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ. Óhætt er að segja að íbúar hverfisins ásamt...