Mikið um dýrðir hjá Lexus á Íslandi
Lexus á Íslandi kynnti nýjan Lexus RX450 h um helgina. Bíllinn verður boðinn í styttri og lengri gerð og í Comfort, EXE, F-Sport og Luxury útgáfum.
Nýi Lexus RX450 h er meira straumlínulagaður en áður og mýkri línur prýða bíinn.
Nokkur breyting er á bílnum frá fyrri útgáfu og útlitið fágað og straumlínulagað. Rúmlega 300 hestar undir húddinu og en um Full Hybrid tækni er að ræða í þessum bíl.
Öflug 313 hestafla vél knúin af bensíni og rafmagni.
Við sýnum hér myndir frá bílasýningu helgarinnar og ekki er annað að sjá en mönnum lítist vel á þessa lúxúsbíla enda um hágæða japanska framleiðslu að ræða. Við hjá Bílablogg.is bíðum spennt eftir að geta sagt lesendum okkar meira um þennan nýja Lexus RX450 h.
Lexus RX450 h er glæsilegur að öllu leyti og innréttingar, sæti og frágangur allur hinn vandaðasti.
Aðrar umfjallanir
Við þekkjum öll litlu sendibílana sem storma um vegi landsins sem “ferðabíla” með svefnplássi, en núna mun Dacia...
Frumsýningar á litlum sportjeppum munu halda áfram að aukast umfram aðrar gerðir í Evrópu þar sem framleiðendur sjá nú fram á meiri eftirspurn í þeim flokki sem hingað til...
Sést hefur þegar til áttundu kynslóðar Volkswagen Golf R, með því að setja tvær aðrar R gerðir af stokkunum árið 2020 sem veitir okkur innsýn í það...
I8 var fyrsti bíllinn frá BMW með tengitvinnbúnaði. Framleiðsluútgáfan af i8 var kynnt á bílasýningunni í Frankfurt árið 2013 og bíllinn fór í sölu árið 2014...