VW ID6 birtist á vefsíðu eftirlitsstofnanna í Kína
Og enn berast fréttir af ID-fjölskyldu bíla frá Volkswagen, í þetta sinn af rafbílnum Volkswagen ID6, Bílll sem aðeins notar orku frá rafhlöðum með sæti fyrir allt að sjö farþega og er áætlaður á markað í Kína, hefur skyndilega komið fram á sjónarsviðið.
Sameiginlegt verkefni Volkswagen Group og SAIC fékk samþykki eftirlitsstofnanna til að framleiða og selja stóra rafbíla í Kína.
ID.6, sem hér sést, verður keppinautur Tesla Model X og Mercedes EQV rafknúinna farþegabíla.
Bíllinn verður smíðaður í nýrri SAIC-Volkswagen verksmiðju í Sjanghæ með 300.000 árlega afkastagetu. Þegar Roomzz hugmyndabíllinn var kynntur sagði Herbert Diess, forstjóri VW, að flaggskipið yrði einnig að lokum kynnt á öðrum mörkuðum en tjáði sig ekki um tímasetningu.
Ný 800 milljón dollara samsetningarverksmiðja VW í Tennessee í Bandaríkjunum mun einnig framleiða rafbíla.
VW framleiðir nú þegar tvö minni farartæki í sameiginlegum verkefnum í Kína - ID4 Crozz saman í FAW-Volkswagen í Foshan og ID4 X sem smíðaður er af SAIC Volkswagen í Shanghai.
ID6 er byggður á sama rafmagnsgrunni (MEB) og Volkswagen er að nota á heimsvísu. Bíllinn er 292 mm lengri en ID4 og 615 mm lengri en ID3 sem aðeins er seldur í Evrópu, miðað við þær upplýsingar sem birtar eru á vefsíðu Kína gefa til kynna.
Í Kína, samkvæmt þessum ríkisskjölum, verður grunngerð ID6 búin 82 kílówattstunda litíumjónarafhlöðu. Tveir aflrásarmöguleikar verða í boði: grunngerð með einum 75 kílóvatta rafmótor með 100 hestöflum og toppútgáfa með tveimur mótorum, einum í hvorum enda ökutækisins, fyrir samanlagt afl 150 kW og 201 hestöfl.
(David Phillips og Yang Jian – Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Háleitar voru þær, hugmyndir manns um fyrsta bílinn. Svo eignaðist ég nú bara Fiat Uno 60 ´87 árgerð en það var ágæt byrjun. Byrja á einhverju mjög lélegu. En af þeim bílum sem mig langaði að eignast sem 17 ára gemlingur þá hef ég nú eignast nokkra þeirra eftir að ég varð stór.
VW mun fjárfesta í að uppfæra MEB pallinn með lengri drægni og hraðari hleðslu til að mæta amkeppni
Polestar breikkar nú vöruframboð sitt af tjúnuðum Polestar Engineered bílum með kynningu á Polestar 2 BST edition 270...
Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar, hefur gefið frekari upplýsingar um hvernig rafbílafyrirtækið mun auka framboð sitt...