iX er nýr rafmagnaður 500 hestafla sportjeppi frá BMW
MUNCHEN - BMW afhjúpaði á miðvikudag iX, sem er rafknúinn sportjeppi og verður hann nýtt „tækniflaggskip“ bílaframleiðandans.
Þessi nýi 500 hestafla sportjeppi er knúinn af tveimur rafmótorum sem knýja öll fjögur hjólin.
Bíllinn notar nýju fimmtu kynslóðina af rafdrifskerfi BMW og er hröðunin frá 0 til 100 km/klst innan við 5 sekúndur, sagði BMW.
iX er með nýja hönnun á framenda með myndavélatækni, ratsjáraðgerðum og öðrum skynjurum sem eru samþættir í grillinu.
iX mun vera með akstursdrægni sem nemur meira en 600 km samkvæmt prófunarferli WLTP í Evrópu og meira en 300 mílum samkvæmt EPA prófunaraðferðinni sem notuð er í Bandaríkjunum. Það er minna en áætluð akstursdrægni Tesla Model X Long Range, sem er metin 371 mílur í Bandaríkjunum.
Ytri mál iX eru nokkurn veginn svipuð og BMW X5 og BMW X6.
Keppir við margar rafbíla
iX mun keppa við Tesla Model X, Ford Mach-E, Audi e-tron quattro og Mercedes-Benz EQC. Bíllinn mun fara í framleiðslu í verksmiðju BMW í Dingolfing í Þýskalandi seinni hluta árs 2021.
Verið er að setja iX á markað á sama tíma og þýskir bílaframleiðendur kljást við að ná rafbílaforystu Tesla.
Hann mun fara í framleiðslu sjö árum eftir að BMW hóf framleiðslu á i3. Á þeim tíma var Tesla einmitt að koma Model S af stað og Volkswagen var enn að markaðssetja milljónir ólöglegra véla sem „hreinar“ dísilavélar.
BMW hefur skuldbundið sig minna við gerðir sem aðeins nota rafhlöður, en kynnt í staðinn fjölda tengibíla.
Það að BMW missti af lestinni varðandi rafbíla hefur reynst þeim dýrt. Hlutabréf fyrirtækisins hafa lækkað um meira en 40 prósent frá hámarki þeirra árið 2015 en fyrirtækið er metið á um 45 milljarða evra. Markaðsvirði Tesla er rúmlega en sjö sinnum meira, eða 389 milljarðar dollara.
Mælaborð og upplýsingaskjár í einni einingu
iX er með 12,3 tommu mælaborðsklasa og 14,9 tommu upplýsingaskjá í einni einingu sem sveigir í átt að bílstjóranum.
Gert ráð fyrir að iX, sem BMW sýndi sem iNext hugmyndabílinn árið 2018, fari í sölu í Evrópu fyrir að minnsta kosti 75.000 evrur.
VW stefnir að sama skapi á meiri sölu á almennum markaði með ID3 og ID4 crossover á lægra verði.
(Bloomberg, Reuters og Automotive News Europe – myndir frá BMW)
Aðrar umfjallanir
Fimmtudaginn 20. ágúst síðastlðinn hófst FIA eRally Iceland 2020, alþjóðleg keppni, sem er hluti af mótaröð alþjóðaaksturssambandsins FIA sem það hleypti...
Við sögðum frá því hér á vefnum á dögunum að Ford væri að umbreyta verksmiðju sinni í Köln í Þýskalandi til að smíða nýja rafbíla. Núna er komið í ljós...
Volkswagen fólksbílar og Volkswagen atvinnubílar voru að heimsfrumsýna nýja ID.Buzz og ID.Buzz Cargo á miðvikudaginn í Hamborg...
PARIS - Renault mun hætta með Kadjar-nafnið eftir eina kynslóð og tekur þá við lítill sportjeppi vörumerkisins. Ber sá nafnið Austral.