Nýr rafknúin BMW 3 sem aðeins notar rafhlöður í reynsluakstri
- Þessi rafknúni BMW 3 Seríu fólksbíll mun keppa við Tesla Model 3
Breski bílavefurinn Auto Express birti njósnaljósmyndir af komandi rafknúnum 3 seríu BMW, sem aðeins notar rafhlöður, sem áætlað er að frumsýna á næsta ári.
Þegar bíllinn kemur á markað mun þessi nýi rafbíll bjóða upp á nýja samkeppni við Tesla Model 3 auk væntanlegs rafdrifins flaggskips frá Citroen.
Þessi nýjasti prófunarbíll er með létta feluliti, svo að það er aðeins hægt að fá betri hugmynd um útlit bílsins. Breytingar í útliti frá á venjulegu 3 seríunni líta út fyrir að vera í lágmarki, þar sem tilraunabíllinn er með sléttari framstuðara og afturenda, sem er án púströrs.
Þessi útgáfa er einnig með aðeins dýpri hliðarsílsa sem hjálpa til við að fela gólf rafhlöðupakka rafbílsins.
Eins og restin af hreinu rafknúnum gerðum BMW mun rafknúin útgáfa 3 seríunnar einnig fá lokað grill og sett af loftfræðilega skilvirkum álfelgum - eiginleikar sem hjálpa bílnum að kljúfa loftið betur og auka aksturssvið hans.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Austurríki mun hækka fjárhagslegar hvatagreiðslur við kaup á rafknúnum bílum og reiðhjólum og þrefalda styrki til hleðslustöðva...
Vatnslásinn eða „hitastillirinn“ er einn af meginþáttum kælikerfis bílvélarinnar, sem stjórnar flæði kælivökva milli vatnskassans og vélarinnar.
Öldugata er í Hafnarfirði og svo er Öldugata í Reykjavík, á Seyðisfirði, Reyðarfirði og víðar. En í Chongqing í Kína er alveg sérstök öldugata eða ölduvegur og þar langar mig að aka.
Nissan 370 Z Twin túrbó (rúm 700 hö) og Tesla Model S Plaid (rúm 1000 hö) fóru í spyrnu. Teslan hafði betur í þeirri fyrri en svo… Já, framhaldið er hér: