Austurríki hækkar hvatagreiðslur við kaup á rafbílum
Austurríki mun hækka fjárhagslegar hvatagreiðslur við kaup á rafknúnum bílum og reiðhjólum og þrefalda styrki til hleðslustöðva frá júlí í viðleitni sinni til að berjast gegn hlýnun jarðar.
Kaupendur rafbíla fá 5.000 evrur (777.000 ISK) í stuðning frá og með miðvikudegi, hækkun frá 3.000 evrum (466.000 ISK), sagði Leonore Gewessler, efnahagsráðherra, á blaðamannafundi á mánudag.
Aukningin er afleiðing af sameiginlegu átaki við bílaiðnaðinn sem mun leggja 2.000 evrur til niðurgreiðslunnar, sagði hún.
Tæplega 33.000 rafbílar voru skráðir í Austurríki í lok maí, aðeins um 0,7 prósent af heildarfjölda bíla, samkvæmt Statistik Austria. Um það bil tveir þriðju hlutar rafbílanna eru atvinnutæki.
Allt að 1.200 evrur verða einnig veittar til að styðja við kaup á rafhjólum, sagði ráðherrann. Allt að 700 evrur koma frá ríkinu og afgangurinn frá dreifingaraðilanum.
(Reuters)
Aðrar umfjallanir
Staðfest hefur verið að Ford Fiesta verði ekki lengur með í framboði Ford, en framleiðslu á þessum vinsæla hlaðbak á að ljúka í júní 2023.
Við Íslendingar höfum alltaf þurft að hafa fyrir því að fá vörur til okkar litla lands. Svo var eyjan illa fær bílum fyrr á öldinni og erfitt að komast á milli byggðarlaga.
Af þeim tegundum sem hefur náð ágætri fótfestu á markaði hér á landi er Dacia. Það er ekki í raun fyrirferðarmikið, en hefur til dæmis átt góðu gengi...
Þessu var auðsvarað á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Á þeim tíma voru enn mjög margir malarvegir um allt land...