Ný kynslóð Yaris komin til landsins
Fjórða kynslóð Yaris er nú komin í sýningarsali hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ á Akureyri og Selfossi þar sem einnig má reynsluaka þessum sívinsæla bíl.
Yaris kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1999 og var frumsýndur á Íslandi í mars það ár. Bíllinn sló rækilega í gegn frá fyrsta degi og markaði það upphafið að velgengni Yaris á íslenskum bílamarkaði sem stendur enn.
Alls hafa 14.074 Yarisar verið skráðir hér á landi og af þeim eru 11.609 eða 82,5% enn í notkun. Tölurnar sýna að Yaris hefur verið einn vinsælasti bíllinn á Íslandi og allar líkur eru á að svo verði áfram þegar fjórða kynslóðin fer að sjást á götunum og setja svip sinn á umferðina.
Oft hefur verið sagt um Yaris að hann sé risasmár og það á einnig við um nýjan Yaris sem tekur ekki mikið pláss á götunni en rúmar samt nýja spræka bensínvél,Hybridkerfiið sem tryggir lítinn útblástur og litla bensíneyðslu, Toyota Safety Sense öryggiskerfið, farangur og fjóra farþega auk ökumanns.
Nýr Yaris er fáanlegur í nokkrum útfærslum og auðvelt er að sníða bílinn að þörfum hvers og eins.
Verð á Yaris með 1.0l bensínvél er frá 3.240.000 kr. Yaris með 1.5l bensínvél og Yaris Hybrid kosta frá 3.770.000 kr.
Aðrar umfjallanir
Uppgerð eða endurbygging á gömlum bílum virðist vera að gefa af sér sand af seðlum ef marka má eftirspurn. Yngri gerðir verða vinsælar til uppgerðar...
LONDON - Rolls-Royce er að þróa sjálfstæðan rafbíl til að undirbúa það að eiga bíl þegar lokun nokkurra miðbæja fyrir bílum með brennsluvélum...
Mercedes-Benz gerir ráð fyrir að frumsýna EQE stóra rafbílinn sem eingöngu notar rafhlöður í september, sagði Ola Kallenius forstjóri...
Við hjá Bílabloggi óskum lesendum okkar gleðilegs árs og takk fyrir allar heimsóknirnar á árinu sem var að kveðja