Polestar 1 PHEV mun fara 93 kílómetra á rafmagninu einu saman
Nýr Polestar 1 Grand Tourer kostar um 21.443 þús. krónur.
Nú er búið að kvarða Polestar 1 bílinn og útkoman er 93 kílómetrar á rafmagninu einu saman. Það er örlítið minna en framleiðandinn var búinn að áætla í fyrstu. Í prófunum var áætlað að bíllinn væri að komast 97 til 121 kílómetra á hleðslunni.
Þrátt fyrir að mælingar og kvörðun á rafmagnsnotkuninni sé örlítið minni en gengið var útfrá í byrjun er kannski ekki alltaf að marka slíkar mælingar við raunnotkun.
Heildardrægni verður hins vegar ekki neitt vandamál í Polestar því fyrir utan 34 kWh rafhlöðu er bíllinn búinn 2.0 lítra, fjögurra strokka vél með forþjöppu. Polestar 1 bíllinn er því að komast um 756 kílómetra vegalengd án þess að þurfa að stoppa á bensínstöð.
Eyðslutölur eru ágætar sé gengið út frá því að þessi frekar stóri bíll er aðeins 4.2 sek. í hundrað kílómetra hraða. Við erum að tala um slétta 9 ltr/100 km og nóg er af aflinu enda bíllinn um 620 hestöfl.
Samanborið við aðra plug-in hybrid bíla er Polestar 1 að stinga af hvað drægni varðar og ætti að duga flestum til og frá vinnu ef menn ætla að nota ökutækið í slíkar ferðir.
Aðrar umfjallanir
Ástæðurnar fyrir því að hætt hefur verið við er áhugaleysi bílaframleiðenda auk óvissu aðstæðna vegna stjórnunar á kórónaveirunnar...
Tesla er að breyta eiginleikum framúrstefnulega rafmagns-pallbílsins eftir því sem samkeppnin eykst frá Ford og Rivian...
Átt þú of fínan bíl?Og vilt ekki að allir haldi að þú sért einhver „uppi“? Þá eru límmiðar málið. Bílalímmiðar eru kjörnir til að koma í veg fyrir að fólk öfundist út í mann vegna fína bílsins. Hér eru nokkur dæmi um límmiða sem gefa einfaldlega til kynna að manni sé nú aldeilis sama um dýra bílgarminn.
Mate Rimac og hans lið er statt í Ameríku að kynna Rimac Nevera. Drag Times greip tækifærið, prófaði bíllinn og setti nýtt heimsmet