Er V8 vélin komin að leiðarlokum?
Þegar ég var lítill strákur að alast upp í nágrenni Hringbrautarinnar í Reykjavík var eitt hljóð sem skar sig úr, var spennandi og áberandi; hljóðið í V8 vélum. Þetta var á árunum í kringum 1970 en þá var verið að framleiða kraftmestu V8 mótorana í Bandaríkjunum. Svo skall á svokölluð orkukreppa og þá urðu vélarnar aflminni, sparneytnari og búnar mengunarbúnaði.
Chevrolet Camaro árgerð 1969 kom með kraftmikilli V8 vél.
Ég held að þetta hljóð ásamt reffilegum amerískum köggum hafi verið kveikjan að bíladellunni hjá mér.
Og enn eru Camaro bílar framleiddir með kraftmiklum V8 vélum.
En það var kominn inn slatti af þessum V8 amerísku bílum, nóg til að maður heyrði þetta V8 hljóð á hverjum degi jafnvel áratugi á eftir. Malandi eins og köttur í hægagangi, urrandi og öskrandi eins og ljón þegar mótorinn var kominn á meiri snúning.
Hér sjáum við Mustang Mach 1 árgerð 1969. Í honum var ansi kraftmikill V8 mótor.
Með lítilsháttar breytingum eða stillingum varstu með verksmiðjuframleiddann bíl sem gat þess vegna prjónað úti á kvartmílubraut. Þetta voru sannkölluð tryllitæki.
Ford Mustang 2020 er boðinn með 5 lítra V8 vél sem þykir ákaflega skemmtileg.
Seinna var farið að framleiða nýja kynslóð af Chevrolet Camaro, Ford Mustang og Dodge Challenger sem voru meðal öflugustu bílanna seint á sjöunda og snemma á áttunda áratugnum og með svipuðu útliti.
Þá fjölgaði V8 bílunum aftur. Þetta voru bílar sem voru á löngu tímabili ekki of stór biti fyrir meðaljóninn að eignast. Þetta virðist vera mótor fyrir ríka fólkið núna eins og hann var upphaflega.
Hverjir muna ekki eftir þessum köggum, Dodge Challenger 1969?
Nú er hending ef ég heyri í V8 mótor nema endrum og eins á sumrin. Ég held að það sé ekki þverrandi heyrn.
Dodge Challenger Black Edtion. Þessir bílar eru framleiddir enn í dag með gríðarlega öflugum mótorum.
Því spyr ég er V8 mótorinn kominn að leiðarlokum? Er hann að hverfa?
Ath. Greinin birtist fyrst í júní 2017.
Aðrar umfjallanir
Volkswagen fólksbílar og Volkswagen atvinnubílar voru að heimsfrumsýna nýja ID.Buzz og ID.Buzz Cargo á miðvikudaginn í Hamborg...
Það sem einum finnst fallegt finnst öðrum ljótt og öfugt. Þetta á líka við um bíla að mati sumra bílablaða og vefsíðna...
Innan fárra ára verða svo gott sem allir nýir bílar sjálfskiptir. Akstursíþróttafólk þarf þó ekki að örvænta því stutt er síðan verkfræðingar Toyota sóttu um einkaleyfi á handvirkum gírkassa eða því sem í raun og veru má skilgreina sem beinskiptingarhermi.
Breski bílavefurinn Auto Express birti njósnaljósmyndir af komandi rafknúnum 3 seríu BMW, sem aðeins notar rafhlöður, sem áætlað er að frumsýna á næsta ári...