Evrópumarkaður spenntur fyrir nýjum Kia XCeed
Kia á Íslandi hefur aðeins verið að kitla væntanlega kaupendur hérlendis með því að segja lítillega frá þessum nýja bíl, Kia XCeed „crossover“ sem er væntanlegur á markað á Íslandi mjög fljótlega.
Reikna með góðu gengi
Þrátt fyrir vaxandi fjölda svipaðra bíla í þessum stærðarflokki býst Kia við því að XCeed muni „standa sig vel innan Ceed-sviðs bíla frá Kia,“ hvað varðar sölu, sagði Ioannis Roussis, framkvæmdastjóri Kia.
XCeed deilir K2-grunni Kia með systkinum sínum í hlaðbaksgerð en þessi nýi „crossover“ í coupe-gerð er 48mm hærri og 85mm lengri.
„Crossover“-bílar og sportjeppar eru sífellt meira ráðandi í hlut minni bíla á markaðnum eru 48 prósent af allri sölu á þessum stærðarflokki í Evrópu árið 2018, sagði hann.
Roussis sagði að hönnun bíls að utan væri lang mikilvægasti þátturinn sem viðskiptavinir leita eftir í „crossover“-bílum þar sem 64 prósent þeirra nefna það sem þátt í kaupunaum.
Hærri og lengri
XCeed er smíðaður á sama K2-grunni og hlaðbaksútgáfan og hann er með sléttu, coupe-líku útliti. Hann er 48mm hærri og 85 mm lengri en hlaðbakurinn, en systurbílarnir eru með sama hjólhaf og sömu framhurðir. Mest af aukinni hæð kemur frá upphækkaðri akstursstöðu (+20 mm) og stærri dekkjum (+17mm).
Grunnatriði:
Dagsetning kynningar: september 2019
Blendingar: Tvær gerðir blendingsdrifrása verða fáanlegir snemma árs 2020. Rafknúin tengitvinngerð með heildarafköst 139 hestöfl. 48 volta mild blendingsgerð byggð á 1,6 lítra dísilvélinni mun bjóða upp á afköst 113 hestöfl og 134 hestöfl.
Öryggi: XCeed býður upp á fjölda staðlaðra öryggisþátta, svo sem akreinaaðstoð, vörn gegn árekstri að framan og viðvörun ökumanns. Snjallskriðstillir, blindviðvörun og viðvörun að aftan varðandi árekstur eru valkvæðir aukahlutir.
Aðrar umfjallanir
Skoda hefur bætt við nýju SportLine útliti í Enyaq iV rafknúna sportjeppanum sínum, sem aðeins notar rafhlöður, með lægri og sportlegri undirvagni...
Já hann er kominn! Ha – hver? Jú litli sportjeppinn á grunni Yaris sem beðið hefur verið eftir frá Toyota...
Fullt var útúr dyrum allan daginn á frumsýningunni á Volvo XC40 Recharge tengiltvinn á laugardaginn...
Fyrir rúmum mánuði síðan var hinn tvítugi Anthony Perry á leið til vinnu eins og aðra virka daga, þegar hann kom auga á mann sem lá á lestarteinunum. Perry gerði það sem allir ættu að gera en fáir myndu í raun og veru gera.