Reynsluakstur: Renault Trafic, árgerð 2020
Umboð: BL

Hönnun, Aksturseiginleikar, lausnir fyrir farmrými
Ekkert AppleCarPlay né Android Auto

Snöggur, snyrtilegur og snilld í traffík

Sumir bílar gera bara einn hlut, aðrir gera tvennt, en svo eru bílar eins og Renault Trafic sem er hægt að fá í hvorki meira né minna en tveim lengdum, þrem útfærslum af staðalbúnaði, tveim mismunandi skiptingum og það er bara ef þú ert að kaupa hann sem sendiferðabíl. Þá er einnig hægt að fá hann sem 6 eða 9 sæta fólksflutningabíl. Já, og tvær mismunandi hæðir á gripinn líka. Það er því óhætt að segja að hann geri meira en bara einn hlut.

image

Það getur verið erfitt fyrir framleiðendur bíla að hanna bíl sem er í boði í svona mörgum útfærslum og á að mæta þörfum svo margra kaupenda. Þeir hjá Renault hafa hinsvegar gert sitt besta og er útkoman í Renault Trafic heldur betur eftirtektaverð. Bíllinn er nokkuð laglegur á að líta og frábær í umgengni og akstri. Sérstaklega er útlit bílsins ánægjulegt, og þá sérstaklega framendinn. Þar gefur að líta falleg ljós, kröftugt grill og í því miðju er Renault merkið sjálft, sem bíllinn ber með miklu stolti.

image
image

Hliðarsvipur Renault Trafic er einkar laglegur og lítið um auka línur á honum. Takið eftir hvernig neðri línan byrjar í fremri hluta bílstjórahurðarinnar og rennur svo mjúklega aftur.

Renault Trafic hefur líka sterkan og fallegan hliðarsvip. Jafnvel þó bílinn sem ég hafði til prufu og var ekki með neinar rúður leit hann samt vel út og tók sig einstaklega vel út á snævi þöktum vegum í kringum höfuðborgina í köldum janúarmánuði.

image

Renault Trafic kemur útbúinn rennihurðum á hliðunum. Hægt er að fá þær á báðar hliðar og eykur það notagildi bílsins svo um munar.

image

Það var ekkert leiðinlegt að spóka sig um á Renault Trafic enda hefur hann útlitið með sér. Hægt er að fá rúður í afturhurðirnar.

image

Afturljósin á Renault Trafic sitja nokkuð hátt á bílnum. Þau eru því auðsjáanleg í umferðinni.

image

Bakkmyndavélinni er komið fyrir ofarlega á afturhleranum við hliðina á þriðja bremsuljósinu. Það gefur henni hentugan stað til að vera á, gott útsýni og skemmir ekki hönnun afturendans.

Farmrými Renault Trafic rúmar 5,2 til 8,6 rúmmetra. Ef þú sért með 5 til 6 sæta bíl þá rúmar það 3,2 eða 4 eftir því hvaða hæð er á bílnum. Þetta rými minnkar í 1,0 rúmmetra á stuttum níu sæta bíl, en eykst upp í 1,2 rúmmetra ef þú tekur hann langan.  Bílinn ber um þúsund til tólfhundruð kíló, allt eftir hvaða útfærsla er tekin. Merkilegast er þó að hægt er að fá hleðslulúgu á skilrúmið á milli bílstjórans og farmrýmisins. Þá er hægt að stinga lengri hlutum í gegnum skilrúmið, undir farþegasætið og alla leið fram í fótrýmið farþegamegin.

image
image
image
image
image

Ekkert mál er að ganga um afturhurðirnar á Renault Trafic, hvort sem er til myndatöku á sjálfum þér eða bera hluti á milli staða. Hjólaskálarnar standa ekki og mikið inn í rýmið og á síðustu myndinni er hægt að sjá hlerann sem þú opnar til að stinga lögnum hlutum inn og undir farþegasætið fram í.

image

Með hlerann svona opin getur þú komið fyrir allt að 4.150mm löngum hlutum í bílinn og samt lokað afturhurðunum.

image

Ef ekki er verið að nýta rýmið undir farþegasætunum fyrir langa hluti er hægt að geyma aðra smáhluti þar.

Sértu í starfi þar sem þú þarft að dvelja þó nokkurn hluta úr deginum í bílnum þá er hægt að mæla með Renault Trafic fyrir þig. Bíllinn er einstaklega ánægjulegur staður til að vera á og hjálpar efnisval og hönnun Renault þar mikið til. Hann er einnig með sniðugar lausnir sem aðstoða þig við að sinna skrifstofustörfum á ferðinni.

image

Hægt er að leggja miðjusætið niður og þá kemur í ljós þessi fíni glasahaldari og ágætis vinnuborð. En dokið við…

image

Ef þú opnar bakið á sætinu þá sérðu að hér er staður til að geyma fartölvu.

image

Hægt er að fjarlægja plastið ofan á bakinu og þá er komið handhægt hnéborð til að geyma blöð á, eins og t.d. afhendingarlista ef þú ert í útkeyrslu á smápökkum.

Mælaborð Renault Trafic er einstaklega skemmtilega hannað og nokkuð þægilegt að vinna við.

image
image

Aksturseiginleikar Renault Trafic eru líka eftirtektaverðir. Hann liggur vel á vegi og dísil vélin sem ég hafði til prufu var 145 hestöfl. Ég hafði einnig nýja sjálfskiptingu í bílnum og létti nokkuð undir akstrinum á bílnum. Þægilegt er að átta sig á stærðinni á honum þökk sé góðum speglum, bæði venjulegum og gleiðhorna, sitt hvoru megin. Það er líka hægt að setja sólskyggnið niður farþegamegin og er það þá útbúið spegli fyrir blinda hornið strax fyrir aftan farþegahurðina. Handhægt ef þú ert að bakka í þröngu umhverfi.

image

Útsýnið úr Renault Trafic er gott og hjálpar þar mikið stærðin á gluggunum.

Lokaorð

Renault Trafic kom mér verulega á óvart þegar ég fékk hann til prufu. Ég bjóst ekki við aksturseiginleikunum sem bílinn hefur, né heldur ánægjulegri hönnun bílsins, sérstaklega að innan í vinnurými bílstjórans. Ég mæli með Renault Trafic fyrir alla þá sem eru að leita sér að góðum vinnubíl sem hægt er að dvelja í svo klukkutímum skiptir án þess að fá leið á því. Taktu hann í lengri gerðinni og í bláu eða rauðu ef þess gerist kostur. Smelltu svo á hann svörtum álfelgum og þá erum við að tala saman!

Hestu tölur

Verð frá: 4.090.000 (Janúar 2020)

Rúmmál farmrýmis: 1,0 til 8,6m3

Útfærsla
Drif
Vél
Girkassi
Eldsneyti
Tog-Hö.
VERÐ FRÁ.
Van - Stuttur L1
Framhjóladrif2.0L Beinskipting Dísel350 - 130
Van - Langur L2
Framhjóladrif2.0L Beinskipting Dísel350 - 130
Van - Langur L2
Framhjóladrif2.0L Beinskipting Dísel350 - 150
Van - Stuttur L1
Framhjóladrif2.0L Sjálfskipting Dísel350 - 130
Van - Langur L2
Framhjóladrif2.0L Sjálfskipting Dísel350 - 150
* Eydsla bL akstur ** 0-100 km/klst
Gert með fyrirvara um prentvillur. BL áskilur sér rétt til breytinga án fyrirvara á verði og búnaði. Vinsamlegast athugið að búnaður á mynd getur verið ólíkur búnaði bílsins.
Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is