Reynsluakstur: VW eCrafter, árgerð 2020
Umboð: Hekla

Aksturseiginleikar og aðstaða bílstjóra
Raundrægni

Læðist út um allan bæ

Kaflaskilin sem við upplifum núna eru hætt að vera eitthvað sem á bara við um einkabíla og jepplinga. Rafmagnið er farið að segja til sín þegar kemur að sendiferðabílum og atvinnubílum. Volkswagen sendu nýlega frá sér e-Crafter sem er rafdrifin útgáfa af Crafter sendiferðabílnum.

image

Byrjum á tölunum

Volkswagen e-Crafter er með sömu aflrás og e-Golf. Volkswagen hinsvegar prófuðu gírkassann og rafmagnsmótorinn fyrir meiri þyngdir en viðhefst í Golf-inum. Áreiðanleiki Volkswagen e-Crafter ætti því að vera í hæsta gæðaflokki þar sem aflkerfið og drifrásin  hafa verið seld í þó nokkur ár.

image

Stór og kröftugur framendinn gefur e-Crafter smekklegt útlit.

Aflrásin samanstendur af 35kw rafhlöðu og 100kw/136 hestafla rafmagnsmótor. Drægnin er uppgefin 170 km en er eflaust lægri þegar búið að að setja í hann eitthvað hlass.

image

Undir vélarhlífinni má sjá nóg af rafmagnsvírum og fleiri hlutum sem ég skil ekki hvað gera. Undir bláa lokinu er samt sett rúðupiss.

image

Útlitið á e-Crafter svipar til sendiferðabíls sem knúinn er áfram af jarðefnaeldsneyti. Það stærsta sem vantar kannski er púströrið að aftan.

Staðsetning rafhlöðunnar í e-Crafter gerir það að verkum að áfram rúmast 10,7 rúmmetrar aftur í. Þar er lofthæðin 1,86m og nóg pláss fyrir alls kyns hluti. Fjögur LED ljós príða loftið og gera vinnuumhverfið bjart og gott. Á bílnum sem ég hafði til prufu voru 5mm krossviðsplötur upp um alla veggi og því alveg hægt að hlaða upp með veggjunum.

image

Innbyggt í afturstuðarann er stórt og gott fótstig til að auðvelda umgengni aftur í.

image

Ljósin í lofti e-Crafter eru LED og mjög björt. Hliðarnar er síðan hægt að fá svona einangraðar sem verja þær gegn hnjaski.

image

Undir farþegasætunum er að finna prýðisgott geymsluhólf fyrir hleðslukapalinn eða eitthvað fleira í þeim dúr.

Einkar handhægt er að lesta e-Crafter þökk sé flötu gólfinu og góðu fótstigi við hverja hurð. Hentugt er fyrir sendla að hlaupa stöðugt inn og út úr bílnum.

image
image
image

Afturhurðir e-Crafter opnast vel og hægt er að leggja þær fram á við meðfram hliðinni til að auðvelda aðgengi.

image

Vinnuaðstaða til fyrirmyndar

Frammi í e-Crafter er að finna þrjú sæti í fullri stærð. Bílstjórasætið kemur útbúið með tvo armpúða sitt hvoru megin en hin tvö ekki. Bílstjórasætið er hins vegar ekkert mál að stilla á alla mögulega vegu. Upp, niður, fram, aftur og mjóbakið líka. Bílstjórasætið er þó ekki á loftpúða eða gormi, en það skiptir kannski minna máli þar sem þessi bíll er hugsaður sem innanbæjar snattari í styttri vegalengdir.

image

Þægilegt og auðvelt er að hendast inn og út úr e-Crafter þökk sé góðu fótstigi og handfangi í góðri hæð vinstra megin í hurðaropinu.

image

Vinnuaðstaða bílstjórans er til fyrirmyndar og einstaklega handhægt að vera með tvo armpúða á bílstjórasætinu.

Það var ekkert mál fyrir mig að finna hina fullkomnu setustöðu undir stýri á e-Crafter.

image

Stýrið í e-Crafter er smátt í sniðum en þykkt. Auðvelt er að nota alla takkana á því í þykkum hönskum.

image

Stafrænan skjá er að finna í miðju e-Crafter og er hann beint úr skúffu Volkswagen samsteypunar.

image

Allt á sínum stað alveg eins og það á að vera.

Mælaborðið er síðan klassískt Volkswagen. Bjart og skýrt og engar óþarfa truflanir. Magnað er í raun hversu hefðbundið það er. Mælarnir eru allir „gamaldags“ mælar. Hér er enginn skjár sem hægt er að stilla á marga mismunandi vegu. Það er mjög þægilegt þegar kemur að því að margir bílstjórar eru kannski með sama bílinn.

image

Sniðug geymsluhólf er að finna alls staðar í Volkswagen e-Crafter. Þar er líka að finna nóg af 12v tengjum.

image

Vinstra megin við bílstjórann má meira að segja finna geymslustað og 12v rafmagnstengi.

Afþreyingarkerfið er síðan beint úr varahlutaskúffu Volkswagen og alveg eins og í öllum fólksbílum þeirra. Um allt mælaborðið má svo finna geymsluhólf af ýmsum stærðum og gerðum fyrir allt það sem sendibílstjórar þurfa. Þar eru líka þónokkuð magn af 12v rafmagnstengjum sem eflaust eru hugsuð fyrir tölvur og leiðsögukerfi sem óneitanlega fylgja starfi sendiferðabílstjóra.

image

Ef þú hefur einhvern tímann ekið Volkswagen bíl á síðastliðnum 10 árum eða svo, þá ættir þú að kunna á þetta útvarpstæki.

Aksturseiginleikar á við gamlan rafmagnsbíl

Það sem kemur þér mest á óvart við það að keyra e-Crafter er hröðunin á honum. Hann rennur áfram snuðrulaust og áreynslulaust. Það er síðan ekki hægt að stilla endurheimtur á rafmagni þegar þú lyftir hægri fætinum en Volkswagen hefur einfaldlega valið eina ríkisstillingu fyrir það.

image

Framrúða Volkswagen e-Crafter er mjög stór og speglar líka. Það gerir það mjög auðvelt að átta sig á stærðinni hans.

Hægt er að stunda svokallaðan eins fóts akstur allan daginn á e-Crafter. Þú þarft varla að lyfta fætinum af inngjöfinni og yfir á bremsupedalann til að stoppa á rauðu ljósi.

image

Stærð og staðsetning spegla Volkswagen e-Crafter hjálpa þér töluvert í akstri.

Volkswagen e-Crafter er síðan reglulega skemmtilegur í akstri. Þrátt fyrir háa hæð þá liggur hann vel. Bíllinn líður bara áfram og er ekkert mál að átta sig á stærðinni á honum þökk sé stórum og fínum speglum. Tveir gleiðhornaspeglar á neðri hlutanum gera það síðan ofureinfalt að fylgjast með blindhornunum.

image

Volkswagen e-Crafter hefur þægilega nærveru á götum úti.

image

Að aftan er bakkmyndavélinni hæglega komið fyrir ofarlega á bílnum og eru því minni líkur á að hún verði skítug. Hún veitir þér líka góða yfirsýn þegar verið er að bakka.

Lokaorð

Það er ánægjulegt að framleiðendur séu farnir að bjóða núna upp á rafmagnsútgáfur af stærri sendiferðabílum. Hvort sú týpa henti rekstri allra er erfitt að segja til um. Volkswagen e-Crafter mætir samt á svæðið tilbúinn til að leggja sitt af mörkum þegar kemur að því að bjóða hljóðláta og kolefnislægri afhendingar á vörum. Það er erfitt að leggja til einhverja sérstaka týpu af e-Crafter þar sem þarfir hvers reksturs eru mismunandi. Taktu hann bara í einhverjum geggjuðum lit og ekki gleyma að láta merkja hann sem 100% rafmagnsbíl á leið til þín.

Helstu tölur:

Verð: 7.390.000 kr.

Hestöfl: 135

Drægni: 170km

Eyðsla: 21,5kWh/100km

CO2: 0g/100km

Burðargeta: 1.750kg

L/B/H: 5.986/2.040/1.861mm

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is