Reynsluakstur: Renault Espace, árgerð 2019
Umboð: BL

Þegar þú vilt ekki fjölskyldujeppa

image

Kannski ekki nógu fallegur til að vera til sýnis á Louvre safninu, en fagur er hann þó.

Ef þú ferð einhvern tímann til Parísar er heimsókn á Louvre listasafnið skylda. Það og Eiffel turninn. Þetta tvennt lýsir vel frönskum áherslum, list og byggingarlist. Ég hefði því verið til í að vera fluga á vegg hjá Renault þegar að þeir ákváðu hver skyldi hanna nýjustu útgáfuna af Espace. Espace á frönsku þýðir pláss, og þú færð það í Renault Espace. Sjö sæti og ellefu gluggar. Já, ellefu. Þú myndir halda að þá ætti Espace að vera kallaður Aquarium, sem er franska fyrir fiskabúr, en síður en svo. Allt þetta gler gerir hann bjartan og einstaklega skemmtilegan að ganga um og aka. Hönnunin á bílnum lætur þig upplifa hann minni en hann er. Mælaborðið er hátt og nálægt bílstjóranum sem gerir það mjög auðvelt að ná í öll stjórntæki. Hönnunin á gírstönginni stóð upp úr fyrir mér og minnti mig á staf Jafars í Aladdín.

Nægt pláss fyrir allt og alla

Byrjum á að ræða þarfir nútíma fjölskyldu. Þú vilt sæti fyrir þig og börnin, vin barnanna og barnapíuna líka. Svo viltu koma fyrir íþróttatöskum, bílstólum og innkaupapokum. Þú vilt svo að bifreiðin sem hefur verið valin sem strætisvagn fjölskyldunnar sé þægileg í akstri, mengi lítið, eyði litlu og sé frjáls við að bila mikið og sé ekki stanslaust á verkstæði í þjónustuskoðunum. Espace svarar öllum þessum þörfum.

image

Hurðir opnast vel og aðgengi er þægilegt. Þarna má sjá aftursætin í þeim þremur mismunandi stöðum sem boðið er upp á.

Byrjum frammí þar sem sætin eru tvö. Þau eru þægileg, koma með slakandi nuddi bílstjóramegin. Á milli þeirra er stjórnborðið sem geymir stjórntækin fyrir afþreyingakerfið og stórt geymsluhólf. Undir því er svo staður til að geyma veski, lykla og þessháttar ásamt glasahöldurum. Sniðugast þar er þó að finna hólf sérstaklega gert til að geyma síma. Þar er líka að finna SD minniskorta rauf til að hægt sé að spila tónlist af því eða jafnvel bíómyndir. Hanskahólfið er síðan í laginu eins og skúffa og er innblásin frá vissri sænskri húsgagnaverslun.

image

Plássið er mikið í Espace, jafnvel þó að þriðja sætaröðin sé upprétt.

Skemmtilegur í umgegni

Ég get síðan ekki hætt að hrósa hönnuninni á Espace. Hægt hefði verið fyrir Renault að hafa hann mun kassalagaðri í hönnun. Allar línur eru mjúkar og engu er ofaukið. Að utan eru línurnar fáar en vel tengdar og að innan eru þær flæðandi og tengja saman form og virkni. Mælaborðið er með skemmtilega bogalínu frá byrjun framhurðanna og tengist hún síðan saman í miðju mælaborðinu. Um alla innréttingu og loft bílsins er að finna stemningslýsingu sem hægt er að skipta um lit á. Nokkrir litir eru í boði og ættu flestir að geta fundið sinn uppáhalds lit.

image

Á hlið er Espace stílhreinn og felur stærð sína vel.

Aksturseiginleikar á við smábíl

Aksturseiginleikar strumpastrætóa hafa oft þótt slappir. Mesta þyngdin hefur verið framarlega í bílnum og lítil dekk miðað við bifreiðina hafa skemmt fyrir bílum sem hafa samt verið góðir og praktískir í notkun. Espace svarar kallinu þegar kemur að góðum aksturseiginleikum. Hann er lipur þrátt fyrir stærðina og stór dekkin gefa gott grip á blautum og hálum vegum. Mjög lítið veghljóð er í bílnum og heyrist ekkert í díselvélinni. Hann líður áfram veginn og hjálpar þar gott tog á breiðu snúningssviði vélarinnar. Jafnvel ef þér finnst leiðinlegt að keyra ættir þú samt að njóta þess á Espace því hann er eins og hugur manns. Að leggja í stæði er heldur ekkert mál því speglarnir eru stórir, útsýnið gott um gluggana ellefu og hann mætir á svæðið útbúinn fjarlægðarskynjurum allan hringinn.

image

Líklegt er að fjölskyldur landsins muni lítið kíkja hingað á 200 hestafla 1.6 lítra vélina, nema til að bæta á rúðupissið.

Lokaorð

Fjölskyldufólk sem þarf sjö sæta bíla hefur hingað til þurft að sætta sig við sendibíla sem hefur verið breytt til að svara kalli þeirra. Jafnvel hafa þau farið í sjö sæta jeppa, en jeppi er ekki fyrir alla. Fjölskyldur sem vilja halda áfram að vera á fólksbíl því rekstur á jeppa heillar þær ekki ættu að kíkja á Espace. Ég mæli með Espace fyrir allar þær fjölskuldur sem vilja komast auðveldlega á milli staða með nægt pláss fyrir lífið sjálft. Ég mæli með honum í hvítu eða bláu. Hvítum kannski frekar því á þeim sést minna af drullunni sem kemur af vegum landsins. Hvaða lit sem þú velur, taktu hann í Intense útfærslu því þá færðu tólf glugga!

Ef þér lýst áann’, keyptann.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is