Nú verður RAV4 stungið í samband
Laugardaginn 19. september bjóða viðurkenndir söluaðilar Toyota til frumsýningar á RAV4 Plug-in Hybrid. Opið er hjá Toyota í Kauptúni og á Akureyri frá kl. 10 – 16 en frá kl. 12 – 16 á Selfossi og í Reykjanesbæ.
Með þessari nýjustu útfærslu er hægt að stinga RAV4 í samband og útkoman er bíll sem sameinar kosti rafmagnsbíls og sparneytins Hybridbíls.
RAV4 verður áfram í boði í Hybridútfærslu og sem hefðbundinn bensínbíll.
Öflugur búnaður RAV4 Plug-in Hybrid tryggir að hann er hreinræktaður rafmagnsbíll með allt að 75 km drægi og 135 km/klst. hámarkshraða á rafmagni eingöngu án þess að bensínvélin komi nokkuð við sögu.
Sem rafmagnsbíll dugar hann því vel í allri venjulegri notkun innanbæjar. Hleðslutími með heimahleðslustöð er aðeins 2,5 klukkustundir.
Velja má um akstur á rafmagni eingöngu eða að nota sameiginlegt afl frá bensínvél og rafhleðslu. Þannig verður RAV4 Plug-in Hybrid að sannkölluðum sportjeppa því samanlagt afl frá bensínvél og rafmagni er 306 hestöfl og bíllinn er aðeins 6 sekúndur að ná 100 km hraða.
RAV4 Plug-in Hybrid fæst í þremur útfærslum, GX, Style og Style+ og kostar frá 8.550.000 kr.
Öllum Toyotabílum fylgir 7 ára ábyrgð og tveggja ára þjónustupakki.
Aðrar umfjallanir
Maður hélt að útþanin túnfiskssamloka í poka á stærð við handbolta væri agalegur viðbjóður sem bifvélavirkar kynnu að finna í bílum viðskiptavina. Það er sko alls ekki það undarlegasta því það er margt sem þeir sjá og finna sem þeir hefðu hvorki viljað sjá né finna.
Maður skyldi nú ætla að næsta ómögulegt væri að tveir bílar væru fyrir tilviljun með sama bílnúmerið. Hvað þá fjórir bílar með sama bílnúmerið! Í dag eru slík mistök við skráningu svo gott sem ómöguleg, en þetta gerðist nú endrum og sinnum hér áður fyrr.
Það styttist í fyrsta vetrardag – og það færir okkur stundum hálku á vegum. Hins vegar er veður og veðuraðstæður...
Volkswagen fagnar kynningu á Obi-Wan Kenobi, nýju Star Wars seríunni, með einstöku pari af ID.Buzz rafbílum....