Sumir bílaframleiðendur fá flippaðri hugmyndir en aðrir. Þegar Range Rover Sport 2014 var kynntur fyrir bílablaðamönnum á Englandi á sínum tíma, var þeim boðið að aka gegnum „bumbu“.
Ljósmyndir/Land Rover International
Framleiðandinn keypti gamla Boeing 747 þotu, gerði á hana op á nokkrum stöðum og bauð viðstöddum að láta reyna á „off road“ búnað bílsins á þennan óhefðbundna hátt.
Já, sennilega einhver frumlegasta prófun sem ég hef heyrt um og sannarlega var þetta „utanvegaakstur“.
Til að ökumenn fengju að finna rækilega hvernig stjórna mætti bílnum í þröngu rýminu var búið að planta einum gömlum og góðum Defender rétt fyrir innan dyrnar. Hindranirnar voru nokkrar, eins og sjá má á myndunum og í meðfylgjandi myndbandi.
Ljósmyndir/Land Rover International
Meira flipp frá sama framleiðanda:
Aðrar umfjallanir
Lexus, sem var frumsýndi ROV torfærubílahugmynd sína í lok síðasta árs, sýnir hann núna á Tokyo Auto Show í Tókýó í ár. Þar er hægt að forskoða...
Nýr Audi Q8 e-tron var forsýndur hjá Heklu í dag. Viðburðurinn var vel sóttur og fullt út úr dyrum þegar við hjá Bílablogg mættum á staðinn. Um er að ræða flaggskip Audi...
Njósnaljósmyndarar Auto Express hafa séð uppfærðan Hyundai i30 N aftur - að þessu sinni klæddan í mun minna af felulitum. Þessi bíll mun fylgja uppfærðu...
„Rúnturinn“ gamli og góði. Man einhver eftir honum? Eða er „rúntur-inn“ í Reykjavík eitthvað sem tekur á sig nýja mynd með hverju tímabili eða kynslóð? Rúnturinn í Reykjavík 1964 var alla vega nokkuð vel skilgreindur.