Polestar byggði sýningarsal úr snjó á heimskautsbaugnum
„Polestar Snow Space“ í Finnlandi býður gestum upp á reynsluakstur og heitt súkkulaði
Ef snjókarlinn „Frosty“ ætti að ákveða að skipta út kústskafti sínu fyrir nýjan bíl, þá er augljós staður til að fara til að prufukeyra einn slíkan: Polestar sýningarsalur úr snjó á heimskautsbaugnum.
„Snjóhúsið er tæplega 12 metrar á hæð og búið til úr 3.000 rúmmetrum af snjó.
Formlega kallaður „Polestar Snow Space“ í bænum Rovaniemi í Finnlandi, gæti þessi tæplega 12 metra hái teningur gæti verið fullkominn í þessu tilliti.
Alrafmagnaði Polestar 2 sem þarna er til sýnis er úr málmi, en nánast allt annað sem er til sýnis inni er byggt úr snjó og ís: skúlptúrar sem sýna hjól, fjöðrunarhluta og bremsur.
Polestar Space - það eru um 130 slík „rými“ um allan heim - bjóða gestum upp á reynsluakstur á snjóbraut.
Eftirmynd fjöðrunarbúnaðar – úr ís.
„Snjórýmið“, sem var smíðað með 3.000 rúmmetrum af snjó frá finnska skíðasvæðinu Ounasvaara, opnaði dyr sínar (jæja, þær opnast eiginlega ekki) 10. janúar.
Það er með 2ja metra þykka veggi úr snjó og tók um það bil 20 daga að byggja húsið.
Byggingaraðili setti upp sérstök mót fyrir veggina sem síðan voru fyllt af snjó sem þjappað var saman.
Martin Österberg, markaðsstjóri Polestar Finnlands, sagði: "Bærinni í Rovaniemi er þekktur fyrir frábæra hönnun sína.
(frétt á vef Autoblog)
Aðrar umfjallanir
Ford Motor Co. og Volkswagen Group sögðu á miðvikudag að þeir myndu smíða allt að 8 milljónir...
Vog á pallinum og „snjallkrókur“ eru frábærar græjur fyrir þá sem draga stöku sinnum og setja farm á pall bílsins...
Flest þekkjum við sögur af fólki sem hefur skarað fram úr í vísindum, viðskiptum, tækni o.s.frv.. Þetta er oft fólk sem maður les oftast um...
Rolls-Royce hefur tilkynnt ýmsar uppfærslur fyrir Phantom-bílinn sem er sá best búni þi framboði þeirra, sem gefur þessum ofurlúxus fólksbíl létta endurbót...