Rafbíll með 12 mílna drægni
Þetta hljómar ekki vel eða jafnvel sem grín, ekki satt?
Þessi kappakstursbíll var ekki hannaður til að keppa við aðra kappakstursbíla heldur til að slá hraðamet við að keyra veginn upp á Pikes Peak en til þess þarf hann einmitt 12 mílna drægni (reyndar aðeins meira en spillum ekki góðri sögu með leiðinda staðreyndum). Þetta er rafbíll eins og margir vita og var nánar tiltekið gerður til að slá hraðamet rafbíla upp á toppinn en hann gerði aðeins betur en það og fór upp á langbesta tíma sögunnar.
1916 Romano Special en bílatækninni hefur greinilega eitthvað fleygt fram.
Volkswagen I.D. R Pikes Peak hefur líka sett alls konar brautarmet.
Höfum textann ekki mikið lengri og munið að láta Dag ekki vita af þessu.
Fyrrum Formúla 1 heimsmeistari Nico Rosberg prófar tækið.
Þyngdarkraftarnir við hröðun og hemlun eru svo miklir að ég hélt að ökumaðurinn í þessu myndbandi myndi falla í yfirlið. Fínustu sportbílar eiga ekki séns í I.D. R. Mjög fróðlegt myndband.
Það er mjög mikill munur á hröðuninni í þessum sem er 1,65 sekúndur í hundraðið eða fyrsta bílnum mínum sem var líka Volkswagen en það var 1967 VW Bjalla með 1200 rúmsentimetra vél og hann, hafði maður á tilfinningunni, var hálftíma í hundraðið.
Sennilega var hann næstum 40 sekúndur í hundraðið en sagan er betri eins og ég sagði hana fyrst.
Aðrar umfjallanir
Tveir fráustu bílar sögunnar þ.e. af þeim bílum sem eru löglegir beint á götuna mættust á dögunum í kvartmílukeppni...
Rolls-Royce mun þurfa að auka framleiðslu á fyrsta rafbílnum sínum Spectre ef pantanir halda áfram að streyma inn...
Samkvæmt frétt í dag á Autocar mun þessi endurnærði keppinautur Ford Ranger og fleiri svipaðra pallbíla, fara í sölu í Bretlandi í nóvember, bíllinn er kominn með nýtt útlit...
Vörubílstjórum fækkar um 109 á degi hverjum í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að þeir falla á lyfjaprófi og eru því bókstaflega teknir úr umferð.