Suzuki litli Jimny er óttalegat smælki á að líta, svona eins og hann kemur úr verksmiðjunni. Enda höfum við séð nokkra slíka bíla sem búið er að „stækka“ með hinum ýmsu misgóðu aðferðum. Kannski er Body Kit bara málið!
Þetta „kitt“ á að gera hann svipaðan Mercedes-Benz G-Class og minnir hann undirritaða dálítið á lítinn krakka sem hefur klætt sig í jakkaföt föðurins. „Krúttlegt“ kannski?
Vel lukkuð Body Kit geta verið algjör snilld, eins og til dæmis þetta hérna sem gerir Dacia Duster bæði ofurtöff og reffilegan á að líta.
Það er óhætt að segja að evrópskur bragur verði á Jimny litla þegar búið er að „klæða hann í“ milljón dollara hugmyndina sem þetta Body Kit hlýtur bara að vera. Hinn japanski Suzuki Jimny (eða Sierra) er sannarlega vinsæll í heimalandinu og víðar, eins og við þekkjum.
Og hugsanlega vilja margir sem eiga svona algengan bíl aðeins trixa hann til. Þetta gæti virkað til að skera sig ögn úr fjöldanum.
Japanskur en dulbúinn sem Breti
Annað skemmtilegt Body Kit fyrir Jimny kemur manni „breskt fyrir sjónir“! Það er töluvert ódýrara en hitt og kostar rúmar 500.000 krónur. Þetta er frá öðru fyrirtæki í Japan sem nefnist DAMD LITTLE D og ef eitthvað er að marka orð þess sem selur kittið í Bretlandi þá er þetta voðalega vinsælt og raunar uppselt eins og staðan er núna.
Bretar sem kaupa japanskan bíl og kaupa svo kitt til að láta bílinn líkjast breskum bíl? Já, það er einmitt eitthvað á þá leið!
Aðrar umfjallanir
Lentir þú, lesandi góður, nokkuð í þessum stöðumælaverði árið 1991? Hann lék ökumenn í miððbæ Reykjavíkur grátt um sumarið það ár.
Hyundai á Íslandi kynnir nk. laugardag, 12. júní milli kl. 12 og 16, breyttan og langdrægari Kona Electric, sem var á sínum tíma fyrsti rafmagnaði...
Í kvöld hittust meðlimir Fornbílaklúbbs Íslands á planinu hjá Tjarnargrilli í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ. Óhætt er að segja að íbúar hverfisins ásamt...
2023 Jeep Compass á Bandaríkjamarkaði fær nýja 2,0 lítra túrbó fjögurra strokka vél með 200 hestöflum...