Jeep kynnir „Magneto“ og aðra hugmyndabíla fyrir Jeep Safari
- Hugsanlega er Magneto byggður á Wrangler 4xe
Okkur hér á landi þykir gaman að fara í „jeppaleik“ öðru hvoru og fjöldi jeppa eru til hér á landi sem aldrei sjá neitt annað en malbik og slétta vegi.
En í „heimalandi“ Jeppana, Bandaríkjunum er þetta ekki síðra, en jafnframt eru margir „jeppaklúbbar“ þar í landi, sem skipuleggja alls konar jeppa- og torfæruferðir og keppnir.
Ein slík sem á sér langa sögu er „Jeep Safari“ sem er árlegur viðburður sem Red Rock 4-Wheelers torfæruklúbburinn stendur fyrir, þar sem bíler með 4-hjóla drifi koma til að takast á við gróft landsvæði óbyggðanna á Moab-svæðinu.
Jeep Magneto - eða kannski Jeep Wrangler Magneto, þar sem Magneto nafnið er á sama stað á vélarhlífinni og annað hvort „Rubicon“ eða „Mojave“ eru venjulega - er á myndinni sem sést hér að ofan.
Þar sem myndin er með aðdrætti er erfitt að sjá hvað annað er nýtt. Autoblog býst við að Magneto-bíllinn verði byggur á 4xe tengiltvinnbílnum með nafni Wrangler, sem Jeep kynnti nýlega.
Hann er með stóra loftinntakið frá Gladiator Mojave og Wrangler 392. Það lítur líka út fyrir að það séu LED ljósarönd í grillinu sem passar við framljósin og stefnuljósin.
Hin myndin af hugmyndajeppanum sýnir ekki neitt nafn, en teikningin sýnir meira af ökutækinu. Það er greinilega byggt á Wrangler tveggja dyra og það hefur fjölbreytt úrval af torfærubúnaði.
Risadekk eru sett á samsettar felgur hjól og nokkrum sérsniðnum brettaköntum hefur verið bætt við til að mæta breiðum dekkjum.
Það eru „torfæruljós“ við framrúðuna og það lítur út fyrir að Wrangler búi yfir nýlega fáanlegum „hálfdyrum“. Autobloh reikbar hjafnvel með að innréttingins é með áklæðið sem sést í bakgrunni teikningarinnar.
Jeep Wrangler 4xe
Við þekkjum nú þegar tvær gerðir frá Jeep með rafdrifi, Jeep Compass PHEV og Jeep Rengegade PHEV, sem Ísband í Mosfellsbæ kynnti í vetur, en Jeep hefur einnig komið fram með slíka útgáfua f Jeep Wrangler.
Aðrar umfjallanir
Ég er enn einu sinni að tala um eftirfarandi grein í tryggingalögunum sem félög og samtök vildu fá breytt enda íþyngjandi fyrir kaupendur notaðra bíla...
Á fimmtánda ári keypti bílasafnarinn Jay Leno sinn fyrsta bíl; Ford pallbíl frá árinu 1934. Síðan hefur hann átt mjög marga bíla en fyrsti bíllinn er alltaf merkilegur.
Við fjölluðum í nóvember um nýjan smábíl sem væri væntanlegur frá Volvo fljótlega en núna er ljóst að það verði EX30...
Við sögðum frá því hér á vefnum í maí að Volkswagen væri að koma með nýjan lítinn sportjeppa, sem þeir nefna Taigo...