GLÆNÝR SJÖ SÆTA PEUGEOT 5008 MEÐ VÍÐTÆKRI 7 ÁRA ÁBYRGÐ. FORSALAN ER HAFIN.
Glænýr, rúmgóður, sjö sæta Peugeot 5008 er kominn í sýningarsal Brimborgar í Reykjavík og mun Brimborg bjóða hann ríkulega búinn í bensín og dísilútfærslu með 7 ára víðtækri verksmiðjuábyrgð.
Forsala á glænýjum Peugeot 5008 er hafin í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg. Sýningar- og reynsluakstursbílarnir eru komnir í sýningarsal Brimborgar í Reykjavík og fyrstu forseldu bílarnir fara í afhendingu á sama tíma.
SPARNEYTINN, RÚMGÓÐUR, SJÖ SÆTA BÍLL MEÐ ÞREMUR ISOFIX FESTINGUM
Glænýr Peugeot 5008 er sparneytinn, rúmgóður 7 sæta bíll með þrjú stök stök sæti í annarri sætaröð á sleða og þremur Isofix festingum. Auðvelt er að fella niður öftustu sætaröðina svo að farangursrýmið verði rúmgott. Glænýr Peugeot 5008 er búinn nýjustu kynslóð sparneytinna PureTech bensín- eða BlueHdi dísilvéla.
Eldneytiseyðsla í blönduðum akstri er frá aðeins 5,2 l/100 km skv. WLTP mæligildi. Peugeot 5008 er með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu sem sparar allt að 7% af eldsneyti miðað við eldri 6 þrepa sjálfskiptingar.
NÚTÍMALEG HÖNNUN OG NÝJASTA KYNSLÓÐ AF TÆKNI
Glænýr Peugeot 5008 sker sig úr með vel heppnaðri nútímalegri og notendavænni hönnun að innan og utan. Að utan er það nýr kröftugur, tignarlegur framendi með LED ljósum með háuljósaaðstoð og nýtt grill sem setja sterkan svip á bílinn. Innra rýmið er fullkomið; nútímalegt og notendavænt þar sem sætin sjö með þremur stökum sætum í miðjuröð sem eru öll á sleða með þremur Isofix festingum leikur lykilhlutverk.
Peugeot 5008 er með nýjustu kynslóð af i-Cockpit innréttingu sem hefur verið sérhönnuð með notagildi og þægindi fyrir ökumann að leiðarljósi þar sem öll stjórntæki, stafrænir mælar og nýr 10“ skjár eru í sjónlínu ökumanns.
EINSTAKLEGA HÁ VEGHÆÐ: 23,6 CM, HÁ SÆTISSTAÐA OG RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR
Glænýr Peugeot 5008 er með einstaklega háa veghæð, 23,6 cm undir lægsta punkt sem er með því hæsta í flokki sjö sæta bíla og háa sætisstöðu svo að það er einstaklega þægilegt að ganga um hann.
Peugeot 5008 er ríkulega búinn þar sem m.a. má finna bakkmyndavél með 180° víddarsýn, nálægðarskynjara að framan og aftan, stafrænt mælaborð með stillanlegu viðmóti, GPS vegaleiðsögn, 10” margmiðlunarskjá, Apple CarPlay snjallsímatengingu, veglínuskynjun, veglínustýringu og ökumannsvaka.
7 ÁRA VÍÐTÆK VERKSMIÐJUÁBYRGÐ Á PEUGEOT BÍLUM
Gæði Peugeot eru einstök enda í boði með víðtækri 7 ára ábyrgð á bílnum. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi þjónustferli framleiðenda.
FORSALAN ER HAFIN HJÁ BRIMBORG
Brimborg er byrjað að taka við forpöntunum á glænýjum Peugeot 5008 í sýningarsal Peugeot í Reykjavík, á Akureyri og í Vefsýningarsal nýrra bíla. Sýningar- og reynsluakstursbílar eru komnir í sýningarsal Brimborg Reykjavík og afhendingar á forpöntuðum bílum hefjast á sama tíma.
Í Vefsýningarsal nýrra bíla hjá Brimborg er að finna alla Peugeot 5008 bíla í pöntun. Þegar draumabíllinn er fundinn er send fyrirspurn beint úr Vefsýningarsalnum sem söluráðgjafi Peugeot svarar um hæl. Viðskiptavinir geta auðveldlega breytt bílum í pöntun að sínum smekk með aðstoð söluráðgjafa Peugeot.
Nánari upplýsingar um glænýjan Peugeot 5008 er að finna á vef Peugeot á Íslandi peugeotisland.is, eða hjá sölustjóra Peugeot á Íslandi, Benný Ósk Harðardóttur eða í síma 5157802.
Aðrar umfjallanir
Fyrsta alvöru kvenkyns árekstrarprófunarbrúðan stefnir að því að gera bíla öruggari fyrir konur
Við hér norður við ysta haf verðum oft að láta okkur nægja að horfa á nýja glæsivagna eins og Rolls-Royce. Þessi var að bætast við og hann er um 600 hestöfl.
Verkstæðisuppákomur vikunnar eru með líflegasta móti, alla vega í Norður-Ameríku. Þegar komið var með F-150 pallbíl á verkstæði nokkurt kom í ljós að hæna sat á helst til stóru priki, þ.e. á afturöxlinum. Þar hafði hún verið alla bílferðina eða heila 32 kílómetra. Vikuskammturinn af vitleysu er hér!
Hefurðu heyrt söguna af Samir? Hinum hræðilega bílstjóra? Þetta er mögnuð og jafnframt fáránleg saga af gríni sem spunnið hefur örlagaþráð í lífi margra frá 2013. Enn sér ekki fyrir endann á þeim ósköpum sem hófust með nokkurra mínútna talsetningu YouTube myndbands.