Toyota Yaris og VW ID.3: Hvernig er öryggið?
Við erum nýlag búin að reynsluaka tveimur nýjum bílum: Toyota Yaris Hybrid og Volkswagen ID3, en hvernig er öryggi þeirra háttað?
Öryggisstofnun fyrir bíla í Evrópu – EuroNCAP birti einmitt nýlega niðurstöður á árekstrarprófunum. Báðir þessir bílar fengu góðar einkunnir í öllum flokkum. Skoðum þær nánar:
Toyota Yaris Hybrid árgerð 2020
Hér að ofan sést niðurstaðan: 86% varðandi vernd fullorðna, 81% varðandi vernd barna, 78% fyrir vernd gangandi vegfarenda og loks 85% fyrir vernd vegna virks aðstoðarbúnaðar ökumanns.
Toyota Yaris í prófunarferli EuroNCAP.
Volkswagen ID.3 árgerð 2020
Hér að ofan sést niðurstaðan: 87% varðandi vernd fullorðna, 89% varðandi vernd barna, 71% fyrir vernd gangandi vegfarenda og loks 88% fyrir vernd vegna virks aðstoðarbúnaðar ökumanns.
Volkswagen ID3 í prófunarferli EuroNCAP.
Þessar tvær prófanir sýna svo ekki er um villst að öryggi í minni bílum er orðið mun meira en áður var og þeir eru engir eftirbátar sér stærri bílum á þessu sviði.
Video-Yaris-2020
Video-ID.3-2020
Aðrar umfjallanir
Aðeins varð uppstokkun í bílaframleiðslu eftir heimstyrjöldina fyrri, en flestir bílaframleiðendur sem voru komnir af stað með framleiðslu héldu áfram, en framleiðslan fór hægt af stað...
Eflaust hafa margir Íslendingar ekið um Eysturoyar-göngin í Færeyjum en þau voru tekin í notkun árið 2020 og þar er fyrsta neðansjávarhringtorg veraldar! Göngin eru 10.5 kílómetra löng og dýpsti hluti þeirra er 187 m. undir sjávarmáli.
Það er óhætt að segja að Dacia hafi átt sviðið (stóran hluta þess) undanfarna daga í bílaheiminum. Hér er ein frétt í viðbót þar sem segir frá rafknúnum torfærubíl sem er mjög áhugaverð hugmynd!