Cruise og GM leita eftir bandarísku samþykki fyrir ökutæki án fótstiga eða stýris
DETROIT / WASHINGTON – Cruise, sem er framleiðandi sjálfkeyrandi bíla, sagði að það og meirihlutaeigandinn General Motors myndu leita eftir samþykki bandarískra stjórnvalda á næstu mánuðum til að setja takmarkaðan fjölda Cruise Origin ökutækja án stýris eða fótstiga í umferð.
Cruise kynnti Origin, sem aðeins er með tvö löng sæti sem snúa hvort að öðru sem rúmast þægilega fyrir fjóra farþega, í janúar. GM ætlar að hefja smíði á bílnum í Detroit seint á árinu 2021 eða snemma á árinu 2022.
Hér má sjá Origin frá Cruise í Castro-hverfinu í San Fransisco. Origin er með tvö löng sæti sem snúa að hvort öðru og rúmar þægilega fjóra farþega. Mynd: CRUISE
Robert Grant, varaforseti Cruise, tilkynnti þetta eftir að Cruise fékk leyfi frá bifreiðadeild Kaliforníuríkis í síðustu viku til að verða fyrstur til að prófa bíla án nokkurra ökumanna á götum San Francisco. Fjögur önnur fyrirtæki hafa leyfi til að keyra tóm í borgum í Kísildalnun þar sem auðveldara er að aka um.
Samkvæmt gildandi lögum geta fyrirtæki leitað eftir undanþágu frá öryggisstöðlum bifreiða fyrir allt að 2.500 ökutæki í allt að tvö ár sem uppfylla ekki gildandi alríkisreglur.
Undanþágurnar eru fyrir öryggisreglur bandarískra ökutækja sem að mestu leyti voru skrifaðar fyrir áratugum og sem gerðu ráð fyrir að ökumenn myndu stjórna ökutæki.
NHTSA hefur verið að íhuga að endurskoða öryggisreglur um farartæki til að fjarlægja „óþarfa hindranir í reglugerðum um örugga innleiðingu sjálfvirkra aksturskerfa“.
(Reuters)
Aðrar umfjallanir
Ójá! Það er fallegt hljóðið í þessum V8 Ford Bronco Baja Monster. Bíllinn kemur á markað í Bandaríkjunum 2023 og er sérlega skemmtilega útbúinn og spennandi að sjá.
Aleksandr Isaev, rússneskur áhugamaður um bílahönnun sýnir ökutæki sem er blanda af Mercedes G-Class og Lada Niva..
Um nokkru síðan hringdi vinur minn einn í mig til að ræða bílamál. Hann er svona kall eins og ég, síðmiðaldra, í tveggja manna fjölskyldu, börnin flogin og...
Sókn Volkswagen í átt að alrafmagnaðri framtíð er þegar hafin með almennum bílum þeirra, en fyrirtækið hefur nú opinberað áætlanir...