60,8% rafbílar og tengiltvinnbílar hjá Brimborg
Gríðarleg aukning hefur orðið í sölu rafbíla (BEV) og tengiltvinn rafbíla (PHEV) hjá Brimborg. Stöðug aukning hefur verið í hlutfalli rafbíla af heildarsölu Brimborgar og náði hlutfallið nýjum hæðum í júlí þegar það fór í 60,8% af seldum fólksbílum. Aukið úrval rafbíla og tengiltvinn rafbíla frá bílaframleiðendum Brimborgar skýrir aukna sölu enda finna sífellt fleiri viðskiptavinir rafmagnaða bíla við hæfi.
Citroën ë-C4 100% rafmagn.
Nú og næstu mánuði mun Brimborg geta boðið 24 gerðir rafmagnaðra bíla til sölu á Íslandi frá fimm bílaframleiðendum. Úrvalið er allt frá litlum borgarbílum til stórra, 7-9 manna bíla, fjórhjóladrifinna jeppa og allt þar á milli.
Ford Explorer AWD PHEV.
Mikið úrval rafbíla frá fimm bílaframleiðendum
Volvo tengiltvinn jepparnir hafa notið gríðarlegra vinsælda undanfarin ár og fljótlega mun Brimborg kynna 100% hreinan rafjeppa frá Volvo. Peugeot sækir mjög hratt inn á markaðinn með hreina rafbíla og tengiltvinnbíla og kynnti nýlega enn einn rafbílinn, e-2008. Ford kynnti nýverið Kuga PHEV tengiltvinnbíl og Ford Explorer PHEV er nýkominn til Íslands og á næsta ári er von á Ford Mustang Mach-E rafbílnum.
Mazda MX-30 100% rafmagn.
Citroën kemur inn á markaðinn í haust og vetur með C5 Aircross PHEV tengiltvinnbíl og e-C4 100% hreinan rafbíl og Mazda mun einnig kynna 100% hreinan rafbíl, MX-30, í haust.
Peugeot e-2008 100% rafmagn.
Rafbílar 75% af sölu Brimborgar um áramót
Brimborg er nú þegar í hópi þriggja stærstu bílaumboðanna þegar kemur að hlutfalli raf- og tengiltvinnbíla af heildarsölu. Með þessu aukna framboði rafmagnaðra bíla reiknar Brimborg með að hlutfall rafmagnaðra bíla af heildarsölu Brimborgar fari yfir 75% um næstu áramót. Auðvelt er að skoða nýja rafbíla og tengiltvinnbíla til sölu í Vefsýningarsal Brimborgar á netinu.
Volvo XC40 100% rafmagn.
Í Vefsýningarsalnum er opið allan sólarhringinn og þægilegt að sitja heima og skoða liti, innréttingar og mismunandi búnað og senda síðan rafræna pöntun eða fyrirspurn beint á söluráðgjafa sem svara um hæl.
Í Vefsýningarsalnum er hægt að skoða bíla sem til eru á lager eða bíla sem eru á leiðinni og óska eftir breytingu á lit, innréttingu og búnaði með aðstoð söluráðgjafa.
Á vef Brimborgar er búið að taka saman alla 24 rafbílana og tengiltvinn rafbílana á einn stað hér.
Aðrar umfjallanir
Á miðvikudagskvöldi í aprílmánuði árið 1946 var bíl stolið í Reykjavík. Bíllinn hafði reyndar verið í viðgerð fyrr um daginn og var hann því í nokkuð góðu standi þegar 18 ára amerískur sjóliði gerði sér lítið fyrir, stal bílnum og ók honum fram af Loftsbryggju.
Að sjá þessar mögnuðu rallýkonur! Hér, í meðfylgjandi myndbandi, eru á ferðinni; já á mikilli ferð, þær Michèle Mouton og Fabrizia Pons. Hin franska Michèle Mouton er án efa magnaðasta kvenpersóna sem rallið getur státað af. Já, og sennilega akstursíþróttaheimurinn svona yfirleitt.
Hann er flottur, vel búinn og gæti hæglega í augum sumra litið út eins og uppgerð Honda Civic árgerð 1972. Við erum að tala um Honda E Advance...
Þegar plata Bee Gees, Saturday Night Fever, hafði selst í milljónum eintaka í Bandaríkjunum árið 1978, fengu þeir ekki platínuplötu. Þeir fengu Cadillac Fleetwood Brougham. Sá bíll virðist reyndar hafa gufað upp…