2021 Mercedes-Benz E 450 og E 53 Coupe og blæjubílar opinberaðir
Mercedes-Benz afhjúpaði uppfærða 2021 E-Class fólksbifreið fyrir nokkrum mánuðum og nú höfum við fyrstu sýn á uppfærðu coupe- og blæjugerðirnar. Stærsta breytingin að utan er nýr framendi, en undir vélarhlífinnini er nýr mildur blendingur tengdur við drifrásina.
2021 Mercedes-Benz E 450 blæjubíll.
Að utan á 2021 E-Class coupé og blæjubílnum eru ný LED framljós sem og uppfært grill. Að aftan hafa LED afturljósin einnig verið uppfærð. Breytingarnar að utan á E-Class Coupé og blæjubílnum eru ekki miklar, en breytingarnar gera það að verkum að báðar gerðirnar líta svolítið sléttari út.
2021 Mercedes-Benz E 53 Coupé.
Inni í bílnum er stærsta viðbótin í MBUX kerfinu, sem inniheldur tvo 12,3 tommu skjái - annan fyrir sjálft mælaborðið og hinn fyrir upplýsinga- og afþreyingarkerfið. Tvískiptur skjárinn gefur E-Class gerðum nútímalegri innréttingu. Það er líka nýtt stýri sem getur greint hvenær hendurnar eru ekki á stýrinu. Ef ökumaðurinn sleppir höndunum of lengi, mun kerfið sjálfkrafa virkja neyðarhemlakerfið.
Og svo er það sem er undir vélarhlífinni. Allir coupé og blæjubílarnir í E-Class fá nýtt milt blendingakerfi / hybrid sem tengt er við samþættan ræsirafal og 48 volta rafkerfi til að bæta við 21 hestöflum og 249 Nm togi.
E 450 er knúinn af 3,0 lítra, sex strokka línuvél sem skilar 362 hestöflum og 500 Nm. Ef þú vilt fá meiri kraft skaltu fara í E 53, sem er með 429 hestöfl og 520 Nm tog - með 3,0 lítra sex strokka túrbó línuvél.
2021 Mercedes-Benz E 450 og E 53 gerðirnar koma að sögn á markað síðar á þessu ári.
(byggt á grein í Torque Report)
Aðrar umfjallanir
Það er kannski óvenjulegt að skrifa um keppni sem maður tók sjálfur þátt í. En það er í lagi þar sem undirrituð vann ekki rallið. Sem hefði nú verið gaman en það er önnur saga! Íslenskt akstursíþróttafólk er framúrskarandi og hér er það til umfjöllunar.
Athafnamaðurinn Egill Vilhjálmsson: Lærði bílaviðgerðir í Bandaríkjunum og var með ökuskírteini númer 3
Þessi sérútgáfa af Land Rover Defender V8 Bond Edition er markaðssett vegna nýju 007 kvikmyndarinnar „No Time To Die“.
Í áranna rás hefur bíllinn, líkt og önnur mannanna verk, þróast mikið og er að mörgu leyti töluvert frábrugðinn fyrstu bílunum í upphafi bílaaldar.