Reynsluakstur: Subaru Outback, árgerð 2021
Umboð: BL

Mýkt, akstursupplifun og sæti
Afl í upptaki, stefnuljósaarmur

Fjölhæfur Subaru Outback klikkar ekki

Subaru hefur verið leiðandi í framleiðslu fjórhjóladrifinna bíla í áratugi. Subaru voru þeir sem voru brautryðjendur í að færa jeppa-módelið yfir í fólksbílinn og síðar jepplinga-módelið.

image

Hæðin undir Subaru Outback er meiri en undir margan sportjepplinginn.

Skutbíll sem leynir á sér

Við fyrstu sýn gæti maður haldið að nýr Outback væri ef til vill Forester eða VX bíllinn frá Subaru en þegar betur er að gáð er hér á ferð hinn eini sanni Subaru Outback sem við höfum þekkt fyrir sérstaka hönnun og aksturseiginleika um árabil.

Allt frá því að fyrsta kynslóð bílsins leit dagsins ljós hefur hann haldið „persónu einkennum” sínum og meira að segja þessi nýja gerð hans með smá „retró” lúkki finnst manni.

Það gerir ef til vill gróf plastklæðining sem rammar bílinn inn að neðanverðu ásamt nokkuð áberandi svörtum plastklæddum þakbogum með þverbitum.

image

Vandaður frágangur einkennir Subaru Outback.

Stútfullur af öllu því nýjasta

Nýr Subaru Outback skorar hátt í öll box. Öryggislega séð er bíllinn framúrskarandi og fékk fullt hús stiga hjá NHTSA öryggisprófunarstofunni.

EasySight búnaðurinn fylgist með árverkni ökumanns, lætur hann vita ef honum finnst hann ekki vera nægilega vakandi við aksturinn.

Þannig lætur bílinn mann vita ef maður lítur of lengi af veginum og stingur upp á kaffibolla ef maður er að breyta aksturslaginu eitthvað frá því sem við erum vön að viðhafa. Kerfið er einnig óþreytandi við að minna mann á að halda athyglinni – eitthvað sem veitir víst ekki af í umferðinni í dag á tímum sítruflandi snjallsíma.

image

Subaru merkið er með hreyfiskynjara þannig að afturhlerinn opnast sjálfkrafa.

Subaru Outback skynjar hættu frá hlið, hann er með árekstrarvara að framan og aftan sem kemur til hjálpar og hemlar ef með þarf. Radarkerfi skynjar gangandi og hjólandi fyrir framan bifreiðina og beitir hemlum ef með þarf.

image

Öflugur framendi einkennir styrkleika.

Stór margmiðlunarskjár

Mælaborðið er Subaru-legt þrátt fyrir nánast allt það nýjasta sem við þekkjum í bílnum dagsins í dag. 11.6 tommu skjár fyrir miðju með öllu því sem við þurfum á að halda. Apple CarPlay og Android Auto, íslenskt leiðsögukerfi, tvöföld stafræn miðstöð, hiti í framrúðu, rafaðfellanlegir og upphitaðir hliðarspeglar, hiti í stýri, skynvæddur hraðastillir og rafopnanlegur afturhleri.

image

Allt innan seilingar fyrir ökumann og sportlegt yfirbragð.

image

Sætin eru sérlega vel formuð og þægileg.

Í fyrstu lítur margmiðlunarkerfið út fyrir að vera ef til vill pínu flókið en í raun eru bara örfáar snertingar sem opna á allt í kerfinu. Grafíkin er skýr, snertiskjárinn er snöggur og allt innan seilingar í mælaborðinu.

image

Subaru er frumkvöðull í þróun fjórhjóladrifs í fólksbílum.

Vandaður frágangur

Að innan var reynsluakstursbíllinn afar vel búinn enda Premium týpan sem var prófuð. Nappa leður á sætum, mælaborð er nánast allt klætt mjúku yfirborðsefni og stunginn saumur víðast hvar í innréttingunni. Sætin mátulega mjúk, bökin breið og lúkka mjög öflug. Rafdrifin stýring á sætum frammí og setur halda mjög vel við.

image

Hér er ekkert til sparað - Nappa leður, fáanlegt í svörtu og beige.

image

Gott pláss fyrir farþega afturí.

Afköst og akstur

Subaru Outback 2021 kemur með 2,5 lítra, fjögurra strokka boxer vél. Sú gefur um 182 hestöfl og togar um 245 Nm. Bíllinn kemur með 8 „þrepa” CVT skiptingu og er um 10,8 sekúndur í 100 km/klst.

Vélin er bensínknúin eingöngu og er því þessi nýi Subaru í sí minnkandi hópi bíla með þennan orkukost. Subaru Outback kemur í þremur útfærslum.

Premium, Field og Lux. Field er með svartan útlitspakka, svarta skrautlista, svart uggaloftnet, svartar felgur og svört speglahús.

image

Hvernig er að aka?

Okkur hjá Bílabloggi fannst aflið nægt. Bíllinn er enginn kvartmílu kaggi en snúningssvið vélarinnar er breitt og hann togar lengi í hverjum gír – ef til vill aðeins of lengi. Kominn á ferð er lítið mál að botna og taka framúr án þess að finna fyrir því að aflið sé að svíkja.

image

Það er hægt að treysta þessari smíði - það hefur reynslan sýnt í áratugi.

Við skelltum okkur yfir hraðahindrun og ætluðum aðeins að láta Outbackinn finna fyrir því en hann hló nánast að okkur. Fjöðrunin er frábær og hann tekur svona „ójöfnur” eins og hraðahindranir án þess að taka eftir því.

image

Gott aðgengi bæði frammí og afturí.

image

Eitt af því sem við náðum ekki að venjast yfir helgina þegar við prófuðum bílinn var stefnuljósaarmurinn. Hann er með eins konar stiglausri stillingu þannig að við framúrakstur þarf maður að gæta þess að slá ekki of fast til baka til að gefa þá ekki stefnuljós í gagnstæða átt fyrir slysni.

image

Farangursrýmið er hið þokkalegasta og hægt að fella niður sæti til að auka pláss.

image

Afturhleri opnast vel og hávaxinn einstaklingur þarf ekki að bogra undir hann.

Fjölnota harðjaxl

Subuaru Outback er lúxusbíll sem hentar mjög breiðum hópi bílakaupenda. Yngra fjölskyldu fólk hefur hér glæsilegan fjölskyldubíl sem hentar fyrir stórar fjölskyldur (fimm sæti).

Frábær í borgar aksturinn sem lipur og þægilegur og einstakur ferðabíll.

Góður kostur fyrir einyrkjann til nota í vinnu og sem vel búinn fjölskyldubíl. Einn besti kostur á markaðnum fyrir þá sem vilja sameina öflugan fjórhjóladrifs bíl og borgarbíl. Subaru Outback getur dregið um 750 kg. eftirvagn án bremsubúnaðar og allt að 2 tonna eftirvagn með bremsubúnaði.

image

Hliðarspeglar með mattri lakkáferð.

Bílar í samkeppni eru til dæmis Volvo V60 Cross Country, Audi Allroad og Mercedes E-Class All-Terrain – bílar sem eru þó mun dýrari kostur.

image

Helstu tölur:

Verð frá : 7.590 þús. (Reynsluakstursbíll kr. 8.490 þús.)

Hestöfl: 182 hö.

Vél: 2.500 rms., fjórir strokkar, Boxer.

Tog: 245 Nm.

CO2: 192 g/km.

Eyðsla bl.ak.: 8.2 ltr/100km.

Eigin þyngd: 1.655 kg.

Dráttargeta: 750/2000 kg.

L/B/H 4860/2084/1687 mm.

Klipping myndbands: Dagur Jóhannsson.

Útfærsla
Drif
Vél
Girkassi
Eldsneyti
Tog-Hö.
VERÐ FRÁ.
Premium
Fjórhjóladrif2.5L Sjálfskipting Bensín252 - 169
LUX
Fjórhjóladrif2.5L Sjálfskipting Bensín252 - 169
* Eydsla bL akstur ** 0-100 km/klst
Gert með fyrirvara um prentvillur. BL áskilur sér rétt til breytinga án fyrirvara á verði og búnaði. Vinsamlegast athugið að búnaður á mynd getur verið ólíkur búnaði bílsins.
Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is